Fara í efni

Ford E-Transit 100% rafsendi- og pallbílar uppfylla skilyrði um rafbílastyrk

Ford E-Transit 100% rafsendi- og pallbílar uppfylla skilyrði um allt að 33% rafbílastyrk af bílverði
Lesa meira
Sjálfbærniuppgjör 2023 og upplýsingagjöf vegna flokkunarreglugerðar ESB

Brimborg. Sjálfbærniuppgjör 2023 og upplýsingagjöf vegna flokkunarreglugerðar ESB

Brimborg birtir sjálfbærniuppgjör fyrir árið 2023 og upplýsingagjöf vegna flokkunarreglugerðar ESB. Brimborg er fyrst bíla- og atvinnutækjaumboða á Íslandi og fyrsta ökutækjaleigan á Íslandi sem gefur út heildstætt sjálfbærniuppgjör þrjú ár í röð ásamt því að vera fyrst í fyrrgreindum atvinnugreinum til að birta upplýsingar í samræmi við flokkunarreglugerð ESB.
Lesa meira
Nýr Opel Movano Electric uppfyllir skilyrði Orkusjóðs um rafbílastyrk fyrir allt að 33% af bílverði án vsk.

Opel Movano Electric 100% rafsendibíll uppfyllir skilyrði um allt að 33% rafbílastyrk

Einstakt tækifæri fyrir fyrirtæki í orkuskiptum stærri atvinnubíla. Glænýr Opel Movano Electric rafmagnssendibíll er komin í sölu hjá Brimborg en hann er skráður yfir 3.500 kg í heildarþyngd, skráist í vörubílaflokk N2 og uppfyllir því skilyrði Orkusjóðs um rafbílastyrk fyrir allt að 33% af bílverði án vsk. Opel Movano Electric er með góða drægni, mikinn hleðsluhraða, fyrirtaks vinnuaðstöðu með góðu aðgengi, ríkulegum útbúnaði, langri ábyrgð og lágum rekstrarkostnaði. Opel Movano Electric hentar fyrirtækjum og einyrkjum mjög vel sem vilja skipta yfir í íslenska, endurnýjanlega, orku, annars vegar til að spara í rekstrarkostnaði og hins vegar til að stíga visthæf skref í átt að sjálfbærni.
Lesa meira
Lokað á laugardögum frá 15. maí-15. ágúst hjá Brimborg

Lokað á laugardögum frá 15. maí-15. ágúst hjá Brimborg

Það verður lokað á laugardögum hjá Brimborg í sumar frá 15. maí - 15. ágúst í söludeildum nýrra og notaðra bíla.
Lesa meira
Rafbílastyrkir vegna þyngri sendibíla, pallbíla og stærri vörubíla.

Rafbílastyrkir vegna þyngri sendibíla, pallbíla og stærri vörubíla. Umsóknarfrestur til 11. júní.

Orkusjóður hefur auglýst styrki vegna þyngri hreinorku vörubíla og er umsóknarfrestur til 11. júní 2024.
Lesa meira
Tvær hraðhleðslur opna á Þórshöfn. Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur á Íslandi. Nú eru 147 hraðhleðslur á landinu og yfir 400 hraðhleðslutengi.

Tvær hraðhleðslur opna á Þórshöfn. Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur

Brimborg Bílorka opnar tvær hraðhleðslustöðvar á Þórshöfn sem gerir rafbílanotendum kleift að ferðast áhyggjulaust alla leið á Langanes. Stöðvarnar eru góð viðbót í vaxandi net hraðhleðslustöðva á landinu sem auðveldar rafbílanotendum lífið. Hraðhleðslustöðvar hafa sprottið upp eins og gorkúlur víðsvegar um landið undanfarin ár og eru nú 147 talsins (skv. plugshare.com) með hátt í 400 hraðhleðslutengi sem hefur gert ferðalög á rafbílum sífellt þægilegri. Norðausturhornið hefur setið á hakanum en nú verður breyting á. Uppsetning hraðhleðslustöðva Bílorku er í samstarfi við Gistiheimilið Lyngholt á Þórshöfn. Önnur þeirra er sett upp við ENN 1 SKÁLANN og hin er við gistiheimilið sjálft. Sú stöð mun einnig nýtast viðskiptavinum nýs veitingastaðar Holtið Kitchen Bar sem opnar í sumar í félagsheimili staðarins og mun laða að enn fleiri ferðamenn til Þórshafnar. Brimborg Bílorka hefur sett upp 12 hraðhleðslustöðvar á síðustu 12 mánuðum og meðal annars þá öflugustu á landinu sem er 600 kW stöð í Reykjanesbæ sem getur hlaðið 8 rafknúin ökutæki í einu. Markmið Brimborgar Bílorku er að efla samkeppni á rafhleðslumarkaði og bjóða framúrskarandi þjónustustig sem er það sem af er ári 99,4%.
Lesa meira
60 ára afmælissýning Ford Mustang laugardaginn 4. maí frá 10-16

60 ára afmælissýning Ford Mustang

Íslenski Mustang klúbburinn og Ford á Íslandi halda sýningu í húsnæði Brimborgar að Bíldshöfða 6 laugardaginn 4. maí frá 10-16. Komdu!
Lesa meira
Rafbíll er hagkvæmari í akstri

Rafbíll er 54%-75% hagkvæmari í akstri þrátt fyrir kílómetragjald. Kílómetragjald leggst á bensín- og dísilbíla um áramót.

Rafmótorinn er einstaklega hagkvæmt fyrirbæri og ekkert sem keppir við hann. Rafbílar sem nota íslenska, endurnýjanlega orku eru ekki bara samfélagslega hagkvæmir á Íslandi með því að draga úr loftmengun og losun gróðurhúsalofttegunda, stuðla að orkuöryggi, betri nýtingu á raforkukerfinu og gjaldeyrissparnaði. Þeir eru líka hagkvæmir fyrir rekstur heimila og fyrirtækja. Sparnaður í orkukostnaði með því að aka rafbíl sem notar 20 kWh af raforku per 100 km og greiðir 6 kr. í kílómetragjald er um 54% miðað við sambærilegan bensínbíl sem eyðir 7 lítrum af bensíni per 100 km og greiðir í dag ekkert kílómetragjald. Rafbíllinn er 75% hagkvæmari í akstri þegar tekið er tillit til lægri kostnaðar vegna þess að engra olíuskipta er þörf og lægri viðhaldskostnaðar.
Lesa meira
Anton Smári Rúnarsson, framkvæmdastjóri Thrifty bílaleigu Brimborgar, við einn af nýju rafsendibílunum sem er í hleðslu í öflugri 180 kW hraðhleðslustöð Brimborgar Bílorku.

Brimborg sendibílaleiga skiptir alfarið í rafsendibíla

Til að mæta vaxandi eftirspurn eftir umhverfisvænni samgöngum hefur Thrifty, sendibílaleiga Brimborgar, tekið stórt skref í átt að sjálfbærari framtíð í samræmi við umhverfisstefnu Brimborgar, Visthæf skref. Brimborg hefur skipt út öllum dísilsendibílum sendibílaleigunnar fyrir rafsendibíla. Þetta táknar ekki aðeins stefnubreytingu í rekstri sendibílaleigunnar heldur einnig framfarir í átt að sjálfbærari samgöngum á Íslandi.
Lesa meira

Frumsýning: Nýr Peugeot E-2008 rafbíll með mikla veghæð og meiri drægni

Nýi Peugeot E-2008 rafbíllinn verður frumsýndur í sýningarsal Peugeot við Bíldshöfða 8, laugardaginn 2. mars í Reykjavík og frumsýningardagar taka svo við til 9. mars. Sýningar- og reynsluakstursbílar verða á staðnum og einnig verður í boði ráðgjöf varðandi hleðslu rafbíla og uppsetningu hleðslustöðva.
Lesa meira
Vefspjall