Breyttu druslunni í djásn
Breyttu druslunni í djásn! Brimborg býður eigendum keyrsluhæfra notaðra bíla sem eru skráðir og í umferð að lágmarki 500.000 kr. uppítökuverð upp í notaðan bíl í eigu Brimborgar. sem er til sölu í Vefsýningar og merktur með "Drusla í djásn" stimpli Aðeins er hægt að setja eina druslu í einu að verðmæti 500.000 kr. upp í kaup á bíl. Drusla í djásn gildir ekki fyrir nýja bíla.
Fáðu þér öruggari, sparneytnari og mengunarminni bíl. Leitaðu að völdum djásnum með „Drusla í djásn“ stimplinum í Vefsýningarsal notaðra bíla hjá Brimborg og finndu rétta bílinn fyrir þig.
Nýttu þér „Breyttu druslunni í djásn“ skiptitilboð Brimborgar
Hjá Brimborg er mikið úrval notaðra bíla og allir bílar ástandsskoðaðir. Við bjóðum hagstætt verð og framúrskarandi þjónustu.
Við bjóðum:
- Notaða, yfirfarna bíla til sölu í miklu úrvali á hagstæðu verði
- Uppítöku á gamla bílnum, skráðum og í umferð, fyrir að lágmarki 500.000 kr.
- Allt að 80% fjármögnun í allt að 8 ár
Uppítökubílarnir fara í eitt af þremur viðurkenndum ferlum hjá Brimborg
- Í endurnot: Bestu bílarnir eru yfirfarnir, lagfærðir og færðir í betra ástand fyrir endursölu eða seldir til endursöluaðila
- Í endurvinnslu: Aðrir eru seldir áfram til bílapartasala eða annarra aðila sem geta gert sér mat úr nothæfum hlutum bílsins
- Í brotajárn: Þeir bílar sem lítið er eftir í eru færðir í brotajárn sem fer til endurvinnslu