Fara í efni

Gjaldskrá nýrra og notaðra bíla

Hér fyrir neðan eru upplýsingar um gjaldskrá nýrra og notaðra bíla hjá Brimborg

  • Sölulaun fyrir bifreiðar í umboðssölu (TSA5100) 4,1% + vsk. af söluverði bifreiðar
    - Lágmarkssölulaun fyrir bifreiðar í umboðssölu (TSA1900) 79.000 kr. m. vsk.

  • Eigandaskipti per bíl (TSA2000) 2.541 kr. (ekki virðisaukaskattskylt)
    - Umferðaröryggisgjald per bíl (TSA2500) 500 kr. (ekki virðisaukaskattskylt)
    - Úrvinnsla upplýsinga úr bifreiðaskrá við sölu notaðra bíla (TSA2800) 4.990 kr. m. vsk.

  • Þjónustugjald vegna skráningu í umboðssölu (TSA1600) 14.900 kr. m. vsk.
    (dregst frá sölulaunum við sölu)

  • Umsýslugjald fjármögnunar 24.900 kr. m. vsk.
    - Gjald vegna greiðslu með kredit/debetkorti (TSA1700) 2,5%

  • Carfax upplýsingagjöf (TSA1800) 14.900 kr. með vsk

Upplýsingar um bifreiðar sem skráðar hafa verið í Bandaríkjunum t.d. skráningarferill, skráð tjón, stolnar bifreiðar, ofl. er að finna í Carfax.

Skilyrði umboðssölu

Af uppítökubifreiðum uppí umboðssölubifreiðar greiðast sömu sölulaun og önnur gjöld til Brimborgar af seljanda þeirrar bifreiðar. Þegar uppítökubifreið er seld greiðast sömu sölulaun.

Brimborg tekur bifreiðar í umboðssölu gegn ákveðnum skilyrðum, þau eru:

  1. Brimborg tekur enga ábyrgð á skemmdum á bifreið í umboðssölu hjá Brimborg hvort sem hún er í reynsluakstri eða á sölusvæði.
  2. Skilyrði er að bifreið sé í lagi, aðalskoðuð, hrein, tekin hafi verið af henni mynd hjá Brimborg og að öðru leiti hæf til sölu að mati ráðgjafa Brimborgar. Við verðlagningu skal tekið mið af verðmatskerfi Brimborgar.
  3. Brimborg áskilur sér rétt til að hafna bifreiðum í umboðssölu, s.s ef bifreiðin er tjónabíll, ef verðlagning er ekki í samræmi við verðmat Brimborgar.
  4. Bifreiðin er skráð í netsölukerfi Brimborgar jafnframt venjulegri skráningu í sölukerfi.
  5. Eigandi er samþykkur því að lána bifreið í reynsluakstur og óháða skoðun ef væntanlegur kaupandi æskir þess.
  6. Skráningin gildir í 3 mánuði og ef bifreið selst á tímabilinu hjá öðrum söluaðila skal eigandi láta Brimborg vita svo hægt sé að taka hana af netinu. Brimborg áskilur sér rétt til að hafna skráningu ef ekki er pláss á sölustöðum.

Söluumsjón við eigendur bifreiða:

Ef eigandi hefur sjálfur selt bifreið og óskar eftir að Brimborg gangi frá sölugögnum fyrir kaupanda og seljanda veitir Brimborg sérfræðiráðgjöf við frágang á skjölum við sölu og gengur frá öllum skjölum ef þess er óskað. Innifalið er frágangur á skjölum vegna staðgreiðslusölu s.s. veðbandayfirlit, skoðun í ferilskrá, frágangur trygginga, afsals og upplýsingar um réttindi og skyldur seljenda og kaupenda.

  • Frágangur sölupappíra (TSA5300) 39.900 kr.  m. vsk.
  • Eigandabreyting per bíl (TS2000) 2.541 kr. m. vsk.
  • Umferðaröryggisgjald per bíl (TSA2500) 500 kr.  (ekki virðisaukaskattskylt)
  • Umsýslugjald fjármögnunar 24.900 kr.  m. vsk.
  • Gjald við greiðslu með kredit/debetkorti (TSA1700) 2,5%

Brimborg tekur enga ábyrgð á ástandi eða fylgibúnaði bíla í eigu 3ja aðila.