Fara í efni

Bílaskipti

Bílaskipti - notaður bíll uppí annan bíl

Losnaðu við fyrirhöfnina við að selja bílinn þinn! Hjá Brimborg geturðu skipt út gamla bílnum þínum fyrir nýjan eða notaðan til kaups eða langtímaleigu, án sölulauna. Við tökum flestar gerðir bíla upp í ef uppítökubíllinn er á númerum, skráður í umferð hjá Samgöngustofu og gangfær (má vera skemmdur eða bilaður). Ef bíll er ekki fluttur inn af umboði bílsins hér á landi þá getum við tekið þannig bíla uppí en þó með þeim fyrirvara að skoða þarf þætti eins og þjónustusögu frá upphafi (t.d. útfyllt þjónustubók), staða ábyrgðar, forskráningardag, fyrsta skráningardag í öðru landi, nýskráningardag (árgerð er ekki skráð á Íslandi), ástand dekkja og atriði sem mögulega eru ekki í samræmi við búnað og tækni bíla sem fluttir eru inn af viðkomandi umboði. Ferlið er einfalt og fljótlegt.

Brimborg tekur ekki uppí húsbíla, mótorhjól (bifhjól), fjórhjól, vélsleða, vinnuvélar, dráttarvélar (traktora), tjaldvagna, hjólhýsi, kerrur, fasteignir, málverk eða aðra lausafjármuni.

Brimborg í Reykjavík tekur ekki notaða bíla í umboðssölu af þriðja aðila þar sem við höfum ekki aðstöðu til þess heldur selur eingöngu notaða bíla í sinni eigu. Brimborg gerir ekki verðmat á notuðum bílum nema um sé að ræða uppítöku upp í kaup á bíl hjá Brimborg. Brimborg Akureyri Tryggjabraut 5 býður þá þjónustu að taka notaða bíla í umboðssölu af þriðja aðila og gerir verðmat á líklegu ásettu verði þegar bíll er kominn í umboðsölu á starfsstöð Brimborgar á Akureyri.

Engin sölulaun og við sjáum um allt ferlið.
Þú getur sett gamla bílinn þinn upp í nýjan eða notaðan bíl með uppítöku, þ.e. bílaskipti upp í annan bíl í sölu eða langtímaleigu hjá Brimborg. Við sjáum um allt meðal annars eigendaskipti, afsal og tilkynningar til Samgöngustofu og tryggingarfélags þíns. Þú greiðir engin sölulaun þegar þú skiptir bíl upp í annan bíl hjá okkur.

Hægt er að setja fleiri en einn eldri bíl upp í kaup á einum bíl. Ef tekinn er bíll á langtímaleigu þá er hægt að setja eldri bíl upp í með beinum kaupum.

Bílaskipti í notaðan bíl

  1. Skoðaðu fyrst úrval notaðra bíla í Vefsýningarsal notaðra bíla.
  2. Finndu bíl sem þér líst á og biddu um tilboð í bíl, skrifaðu þar inn ósk um uppítöku og verðmat á gamla bílnum þínum. Skráðu þar inn upplýsingar um bílinn þinn eins og bílnúmer, bíltegund og gerð, akstur í km, hvort hann sé sjálfskiptur eða beinskiptur, hver er staða ábyrgðar og þjónustusögu, ástand dekkja og hverjar þínar væntingar eru um verð.
  3. Söluráðgjafi hefur samband um hæl, ræðir við þig um uppítökuverð, líklegt ásett verð, milligjöf, fjármögnun og næstu skref eins og söluskoðun sem er þér að kostnaðarlausu.

Vefsýningarsalur (leitarvél) notaðra bíla

Bílaskipti í nýjan bíl

  1. Skoðaðu fyrst úrval nýrra bíla í Vefsýningarsal nýrra bíla.
  2. Finndu bíl sem þér líst á og biddu um tilboð í bíl, skrifaðu þar inn ósk um uppítöku og verðmat á gamla bílnum þínum. Skráðu þar inn upplýsingar um bílinn þinn eins og bílnúmer, bíltegund og gerð, akstur í km, hvort hann sé sjálfskiptur eða beinskiptur, hver er staða ábyrgðar og þjónustusögu, ástand dekkja og hverjar þínar væntingar eru um verð.
  3. Söluráðgjafi hefur samband um hæl, ræðir við þig um uppítökuverð, líklegt ásett verð, milligjöf, fjármögnun og næstu skref eins og söluskoðun sem er þér að kostnaðarlausu.

Vefsýningarsalur nýrra bíla

Hröð og örugg þjónusta

  • Af hverju uppítaka hjá Brimborg?
      • Engin sölulaun – þú sparar tíma og pening.
      • Einfalt og hratt ferli – við sjáum um allt frá upphafi til enda.
      • Hagstæð fjármögnun – ef þú þarft lán fyrir mismuninum, finnum við lausn sem hentar þér.
      • Mikið úrval nýrra og notaðra bíla – finna má fjölbreyttar tegundir og verðflokka.

Skiptu gamla bílnum upp í annan – snurðulaust.

Eftirfarandi upplýsingar um uppítökubílinn þurfum við að fá þegar þú óskar eftir uppítöku.

Til að verðmatið verði sem nákvæmast, vinsamlegast skráðu alltaf:

  • Bílnúmer
  • Tegund og gerð
  • Akstur (km)
  • Hvort bíllinn er sjálfskiptur eða beinskiptur
  • Stöðu ábyrgðar, þjónustusögu og hvort bílnum fylgi útfyllt þjónustubók
  • Gerð dekkja undir bílnum (t.d. sumardekk, vetrardekk) og ástand þeirra
  • Þínar væntingar um verð

Við verðmat er ekki horft til árgerðar bílsins enda er árgerð ekki tilgreind við nýskráningu bíla á Íslandi. Hins vegar horfum við til forskráningardags og nýskráningardags á Íslandi og fyrsta skráningardags í öðru landi ef bíllinn var fyrst skráður utan Íslands. Við mati á aldri bílsins er því miðað við fyrsta skráningardag í öðru landi ef sú dagsetning er eldri en nýskráningardagur á Íslandi.

Verðmat notaðra bíla þ.e. mat á uppítökuverði og líklegu ásettu verði er aðeins gert fyrir uppítökubíla þ.e. fyrir bíla sem settir verða uppí kaup á bílum hjá Brimborg. Því er ekki gert verðmat eða mat á ásettu verði fyrir t.d. beina sölu, mat fyrir tryggingarfélög vegna tjónauppgjörs eða mat vegna dánarbúa svo dæmi séu tekin.

Hafðu í huga að uppítökubíllinn þarf að vera á númerum, skráður í umferð hjá Samgöngustofu og gangfær en hann má vera bilaður.

Uppítaka

Hvernig virkar uppítakan?

  1. Finndu bíl sem þér líst á og biddu um tilboð í bíl, skrifaðu þar inn ósk um uppítöku og verðmat á gamla bílnum þínum. Skráðu þar inn upplýsingar um bílinn þinn eins og bílnúmer, bíltegund og gerð, akstur í km, hvort hann sé sjálfskiptur eða beinskiptur, hver er staða ábyrgðar og þjónustusögu og hverjar þínar væntingar eru um verð.
  2. Fáðu tilboð og sendu inn upplýsingar um gamla bílinn
    Þegar þú hefur fundið bíl sem þér líst á, smelltu á „Fá tilboð“ og settu inn upplýsingar um bílinn sem þú vilt skipta uppí annan bíl hjá Brimborg. Flestir gerðir bíla eru gjaldgengar í uppítöku ef þeir eru skráðir ökuhæfir í umferð hjá Samgöngustofu, á númerum og þú getur ekið bílnum til okkar í Brimborg. Uppítökubíllinn þarf ekki að vera fullkominn og má vera bilaður. Því betur sem þú lýsir bílnum þínum því nákvæmara verðmat getum við gert og tilboð í uppítökuverð.
  3. Fáðu verðmat og tilboð
    Söluráðgjafar Brimborgar meta uppítökubílinn þinn og senda þér áætlað uppítökuverð, verðmat á uppítökubíl, Ef þú ert sáttur við verðmatið og milligjöfina þá er uppítökubíllinn þinn settur í söluskoðun sem er þér að kostnaðarlausu. Þú færð í framhaldi tilboð í milligjöf og möguleikar eru skoðaðir á hagkvæmri fjármögnun ef óskað er. Kaupverð bílsins, uppítakan og uppítökuverðmatið er síðan endanlega staðfest þegar bæði kaupandi og söluráðgjafi fyrir hönd Brimborgar hafa undirritað samning um kaup og uppítöku.