Jeppar
Jeppar nýir
Jeppar eru í boði hjá Brimborg af ýmsum stærðum og gerðum og í mismunandi verðflokkum. Þeir eru fáanlegir bæði 5 sæta og 7 sæta með góðu farangursrými og mikilli dráttargetu. Einfaldaðu bílakaupin. Láttu okkur sjá um allt, uppítöku á gamla bílnum og hagstæða fjármögnun.
Jeppar nýir | Verðlistar - Búnaður - Tækniupplýsingar
- Ford jeppar | Verð - búnaður - tækniupplýsingar
- Volvo jeppar | Verð - búnaður - tækniupplýsingar
- Mazda jeppar | Verð - búnaður - tækniupplýsingar
- Peugeot jeppar | Verð - búnaður - tækniupplýsingar
Brimborg býður allar tegundir og gerðir jeppa sem eru í boði frá okkar framleiðendum svo framarlega sem þeir eru í boði fyrir evrópskan markað, uppfylla evrópskar kröfur um skráningu skv. heildargerðarviðurkenningu (Whole Vehicle Type Approval) og eiginleikar og búnaður henti fyrir íslenskar aðstæður.
Hvað varðar jeppa frá Ford og Lincoln í Bandaríkjunum býður Brimborg þá til sölu með beinum innflutningi beint frá verksmiðju þó þeir séu að jafnaði ekki í boði til sölu í Evrópu. Þetta er mögulegt með sérstöku samkomulagi Brimborgar við Ford í Bandaríkjunum. Ákveðnar grunngerðir eru sýnilegar í Vefsýningarsal og á verðlista en tilboð er gert í aðrar gerðir.
Þessir bílar njóta fullrar ábyrgðar á Íslandi frá Ford og sérstakrar framlengdrar ábyrgðar frá Brimborg ef þeir eru fluttir inn af Brimborg og keyptir af Brimborg. Skv. fyrirmælum framleiðanda þá er ábyrgð (verksmiðjuábyrgð) ekki gild á Íslandi fyrir bíla sem seldir voru upphaflega í Bandaríkjunum eða Kanada (Norður Ameríku) og síðar fluttir til Íslands. Af því leiðir að framlengd ábyrgð Brimborgar gildir ekki heldur. Sjá nánar um ábyrgð bíla hjá Brimborg hér.
Bronco jeppinn er ekki í boði frá bílaframleiðandanum Ford almennt fyrir evrópskan markað né þann íslenska þar sem hann hefur ekki verið aðlagaður að Evrópskum stöðlum. Brimborg getur þó boðið sérpöntun á Bronco. Ford Bronco bílar njóta fullrar ábyrgðar á Íslandi frá Ford og sérstakrar ábyrgðar frá Brimborg ef þeir eru fluttir inn af Brimborg og keyptir af Brimborg. Skv. fyrirmælum framleiðanda þá er ábyrgð (verksmiðjuábyrgð) ekki gild á Íslandi fyrir bíla sem seldir voru upphaflega í Bandaríkjunum eða Kanada (Norður Ameríku) og síðar fluttir til Íslands. Af því leiðir að framlengd ábyrgð Brimborgar gildir ekki heldur. Sjá nánar um ábyrgð bíla hjá Brimborg hér.
Lincoln lúxusjeppar eru ekki í boði frá bílaframleiðandanum Ford almennt fyrir evrópskan markað né þann íslenska þar sem hann hefur ekki verið aðlagaður að Evrópskum stöðlum. Brimborg getur þó boðið sérpöntun á Bronco. Ford Bronco bílar njóta fullrar ábyrgðar á Íslandi frá Ford og sérstakrar ábyrgðar frá Brimborg ef þeir eru fluttir inn af Brimborg og keyptir af Brimborg. Skv. fyrirmælum framleiðanda þá er ábyrgð (verksmiðjuábyrgð) ekki gild á Íslandi fyrir bíla sem seldir voru upphaflega í Bandaríkjunum eða Kanada (Norður Ameríku) og síðar fluttir til Íslands. Af því leiðir að framlengd ábyrgð Brimborgar gildir ekki heldur. Sjá nánar um ábyrgð bíla hjá Brimborg hér.
Jeppar verð tilboð
Jeppar hjá Brimborg eru vel hlaðnir aukabúnaði, aflmiklir en á frábæru verði miðað við búnað. Hagstæð bílainnkaup Brimborgar nýtast bílkaupendum beint í lægra verði. Það kemur fyrir að við eigum jeppa sem hafa verið notaðir sem sýningarbílar eða reynsluakstursbílar og þá bjóðum við oft á góðu tilboði.