Breyttu druslunni í glænýtt djásn hjá Brimborg!
13.03.2026
Breyttu druslunni í djásn! Brimborg býður eigendum keyrsluhæfra notaðra bíla sem eru skráðir og í umferð að lágmarki 500.000 kr. uppítökuverð upp í nýjan bíl á lager hjá Brimborg. Aðeins er hægt að setja eina druslu í einu að verðmæti 500.000 kr. upp í kaup á bíl. Drusla í djásn gildir fyrir nýja bíla á lager merkta sem "Drusla í djásn".
Fáðu þér sparneytnari og öruggari bíl. Leitaðu að völdum djásnum með „Drusla í djásn“ stimplinum í Vefsýningarsal nýrra bíla og finndu rétta bílinn fyrir þig.
Nýttu þér „Breyttu druslunni í djásn“ skiptitilboð Brimborgar
Hjá Brimborg er mikið úrval nýrra bíla á lager. Við bjóðum hagstætt verð og framúrskarandi þjónustu.
Við bjóðum:
- Nýja bíla á lager frá sjö framleiðendum: Ford, Volvo, Mazda, Citroën, Peugeot, Opel og Polestar.
- Uppítöku á gamla bílnum, skráðum og í umferð, fyrir að lágmarki 500.000 kr.
- Allt að 80% fjármögnun í allt að 8 ár
Uppítökubílarnir fara í eitt af þremur viðurkenndum ferlum hjá Brimborg
- Í endurnot: Bestu bílarnir eru yfirfarnir, lagfærðir og færðir í betra ástand fyrir endursölu
- Í endurvinnslu: Meira mengandi bílar eru seldir áfram til bílapartasala sem rífa þá niður og selja íhluti úr þeim í aðra bíla sem þurfa lagfæringar við
- Í brotajárn: Mest mengandi bílarnir eru færðir í brotajárn sem fer til endurvinnslu