Fara í efni

Brimborg með risa rafbílabás á Golf EXPO 2026 í Laugardalshöllinni 7.-8. mars! Sjáumst!

Brimborg með risa rafbílabás á Golf EXPO 2026 í Laugardalshöllinni 7.-8. mars! Sjáumst!
Brimborg með risa rafbílabás á Golf EXPO 2026 í Laugardalshöllinni 7.-8. mars! Sjáumst!

Brimborg sýnir sex flotta rafbíla í risabás á Golf EXPO 2026 í Laugardalshöllinni dagana 7.-8. mars 2026. Sýningin er opin báða daga frá 11-17.

Golf EXPO er einn stærsti viðburður ársins fyrir golfáhugafólk, þar sem gestir fá að kynnast spennandi vörum, þjónustu og nýjungum sem tengjast golfi og útivist. Golfarar þurfa bíla sem taka vel við golfsettum og kerrum sem fara vel með umhverfið.

Risa rafbílabás

Brimborg verður með rúmlega 200 fermetra bás og þar getur þú skoðað sex rafbíla: Volvo EX90, Mazda6e, Opel Grandland, Ford Puma, Peugeot E-5008 og Polestar 4. Rafbílar sem henta sérlega vel fyrir golfara.

Auk glæsilegra bíla verður Bílorka með hleðslustöðvar á svæðinu til kynningar og fræðslu, sem og MAX1 með fjölbreytt úrval af Nokian gæðadekkjum.

Golfarar og aðrir gestir Golf EXPO 2026 fá einnig tækifæri til að hitta Sigurjón Árna Ólafsson, golf- og bílasérfræðing, sem verður á básnum til að svara spurningum og deila sérfræðiþekkingu um golf og bíla.

Golf EXPO 2026 fer fram 7. og 8. mars í Laugardalshöll og býður upp á fjölbreytta dagskrá með sýningum, fyrirlestrum og kynningum fyrir kylfinga á öllum aldri. Hlökkum til að sjá ykkur!

Sýningin er opin:

  • Laugardaginn 7. mars frá kl. 11-17
  • Sunnudaginn 8. mars frá kl. 11-17

Kynntu þér rafmagnaða "golfbíla" Brimborgar: 

Volvo EX90

Mazda6e

Opel Grandland

Ford Puma

Peugeot E-5008

Polestar 4

Bílorka – Hleðslustöðvar fyrir heimili, sumarhús og fyrirtæki ásamt öflugu hraðhleðsluneti

Bílorka sér um sölu og uppsetningu hleðslustöðva fyrir heimili, einbýli og fjölbýli, sumarhús og fyrirtæki auk þess að vera með öflugt net hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla á Íslandi. Hjá Bílorku færðu heimahleðslustöðvar, hleðslukapla og ferðahleðslutæki og getur pantað uppsetningu á hleðslustöðinni á föstu verði við kaupin. Fyrir fyrirtæki býður Bílorka ráðgjöf, frumúttekt og möguleika á rekstrarleigu hleðslustöðva til að mæta þörfum fyrirtækjaflota. Hraðhleðslunet Bílorku er víða um landið og appið eONE (e1) gerir notendum kleift að greiða og nota stöðvarnar með einföldum hætti. Sýningartilboð verða í boði á sýningunni.

Smelltu og kynntu þér Bílorku

Nokian gæðadekk frá MAX1

Þú færð margverðlaunuð Nokian gæðadekk með Hakka ábyrgð hjá MAX1 Bílavaktinni, með Hakka ábyrgð færðu nýtt dekk án endurgjalds ef dekk skemmist. Við eigum úrval dekkja. Sendum Nokian gæðadekk um allt land!