04.09.2023
Uppfært: Starfsemi í eðlilegt horf eftir netárás, rannsókn sérfræðinga í gangi
Í kjölfar netárásar á tölvukerfi Brimborgar þar sem hluti gagna var læstur hefur Brimborg gripið til ýmissa ráðstafanna til að loka á aðgang árásaraaðila til dæmis með lokun á aðgöngum, endurræsingu lykilorða og fleira ásamt því að vinna að rannsókn á umfangi öryggisbrestsins og leitast við að upplýsa hvort og þá hvaða upplýsingar hafi farið út úr fyrirtækinu. Ekki hafa fundist vísbendingar á þessu stigi um að gögn hafi farið úr húsi.
Eftir að öryggi kerfa var tryggt var umsvifalaust hafist handa við að byggja upp kerfin að nýju, koma gögnum af afritum á sinn stað og vinna að auknum netvörnum til skamms- og lengri tíma. Meginkerfi Brimborgar voru opnuð tveimur dögum eftir netárásina og í dag eru nánast öll kerfi virk og starfsemi í megindráttum komin í eðlilegt horf.
Lesa meira
29.08.2023
Netárás á kerfi Brimborgar
Aðfararnótt 29. ágúst var gerð netárás á hluta upplýsingakerfa Brimborgar og gögn tekin í gíslingu. Um leið og starfsmenn Brimborgar urðu þessa varir voru helstu sérfræðingar landsins fengnir að borðinu til að greina umfangið, í hverju öryggisbresturinn fólst og koma kerfum aftur í gang. Vinnan er í gangi og því er umfangið ekki þekkt á þessu stigi.
Lesa meira
02.08.2023
Rafbílar 70% af sölu Brimborgar
Rafbílar voru 70% af öllum nýskráningum Brimborgar í júlí en Brimborg nýskráði 120 rafbíla í mánuðinum og var stærst innflytjenda á rafbílum.
Lesa meira
18.07.2023
Polestar 1
Nú er tækifæri að tryggja sér einn af fáum Polestar 1 bílum sem framleiddir hafa verið. Polestar 1 er tengiltvinnbíll með afburða aksturseiginleika og marg verðlaunaður GT Coupe bíll. Polestar 1 fór í framleiðslu í Polestar bílaverksmiðjunni í Chengdu, Kína, árið 2019 og var einungis framleiddur í 1.500 eintökum og er því góð fjárfesting sem safngripur.
Lesa meira
13.07.2023
Sjóðheitt rafbílatilboð á Mazda MX-30
850.000 kr afsláttur - Verð aðeins 3.990.000 kr.
Mazda MX-30 Exclusive Line rafbíllinn fæst nú á ótrúlega hagstæðu tilboðsverði eða aðeins 3.990.000 kr. tilbúinn á götuna með inniföldum málmlit en verðlistaverð er 4.840.000 kr.
Lesa meira
29.06.2023
Opel býður fyrirtækjum einfalda orkuskiptalausn með fimm þrepa heildarlausn Brimborgar
Sífellt fleiri fyrirtæki skipta í rafmagns atvinnubíla og þá er að mörgu að hyggja varðandi hleðslulausnir og fleiri þætti sem þarfnast sérfræðiþekkingar. Til þess að mæta þörf um ráðgjöf og faglega þekkingu til orkuskipta hjá fyrirtækjum hafa Opel og Brimborg þróað Orkuskiptalausn Brimborgar.
Lesa meira
28.06.2023
Brimborg opnar í sumar öflugustu hraðhleðslustöð landsins í Reykjanesbæ
Brimborg hefur hafið framkvæmdir við uppsetningu á öflugustu hraðhleðslustöð landsins þar sem rafmagnsvinnuvél sér um jarðvinnu og aðföng eru flutt á verkstað á rafmagnssendibíl. Stöðinni hefur verið valinn staður á Flugvöllum í Reykjanesbæ stutt frá flugstöðinni. Um er að ræða stöð af Kempower gerð með hleðsluafköst allt að 600 kW og getur stöðin annað hleðslu 8 ökutækja í einu af öllum stærðum og gerðum. Brimborg hefur samið við HS veitur um orku fyrir stöðina og hefur stór heimtaug þegar verið virkjuð. Stöðin verður opin öllum rafbílanotendum með e1 hleðsluappinu og opnar stöðin í sumar.
Lesa meira
19.06.2023
Eigendur Citroën C4 eru ánægðastir allra bílaeigenda samkvæmt Carbuyer
Eigendur Citroën C4 bíla eru ánægðastir allra bílaeigenda árið 2023 samkvæmt árlegri könnun breska bílavefsins carbuyer. Samkvæmt eigendunum skora Citroën bílarnir mjög hátt í að vera þægilegir, vel byggðir, áreiðanlegir, hagkvæmir í rekstri, með góðan öryggisbúnað og töldu þeir sig fá mikið virði fyrir peninginn.
Lesa meira
12.06.2023
Brimborg breytir lífrænum úrgangi í jarðvegsbæti
Starfsfólk Brimborgar náði frábærum árangri í úrgangsflokkun og endurvinnslu árið 2022 þegar 88,40% af úrgangi var flokkaður og 89,10% fór í endurvinnslu. En við viljum gera enn betur. Nú hefjum við vegferð í samvinnu við Pure North til að meðhöndla lífrænan úrgang sem til fellur í rekstri Brimborgar á enn skilvirkari hátt. Við höfum tekið í notkun jarðgerðarvél sem mun breyta öllum lífrænum úrgangi hjá okkur í jarðvegsbæti.
Lesa meira
08.06.2023
Sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins - Aðalvinningur Opel Mokka-e rafmagnsbíll frá Brimborg
Í aðalvinning sumarhappdrættis Krabbameinsfélagsins er Opel Mokka-e 100% rafbíll frá Brimborg að verðmæti 6.036.000 kr. Vinningar í sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins eru að þessu sinni 253 talsins og samtals að verðmæti um 52,4 milljónir króna.
Lesa meira