Fara í efni

Rafbíladagar í Brimborg! Kaupauki við bílakaup eða langtímaleigu.

Kaupauki: Í janúar fylgir heimahleðslustöð og Nokian vetrardekk hverjum keyptum eða leigðum (36 mánaða leiga) rafbíl, nýjum eða notuðum, eða jafngildi í öðrum aukahlutum ef hleðslustöð eða dekk henta ekki.
Lesa meira
Þróun hlutfalls rafbíla af kaupum einstaklinga, fyrirtækja og bílaleiga á fólksbílum frá 2012 þegar rafbílavæðingin hófst og til ársins 2025.

Rafbílar meira en 40% hagstæðari í akstri en bensínbílar

Með innleiðingu km gjalds á öll ökutæki og lækkun á gjöldum á eldsneyti samhliða þá er áhugavert að endurreikna orku- og km kostnað ökutækja eftir orkugjöfum. Niðurstaðan er að rafbíllinn er enn með yfirburði eða 43,6% hagstæðari en sambærilegur bensínbíll og þá er ekki tekið tilliti til um 60% lægri þjónustu- og viðhaldskostnaðar rafbíls. Rafbílar voru 62% af kaupum einstaklinga á fólksbílum árið 2025 og hjá fyrirtækjum var hlutfallið 57,4%. Rafbílar eru núna næstum 37 þúsund í landinu og 14,4% af öllum fólksbílum. Líklegt er að rafbílar verði fleiri en dísilbílar á Íslandi um mitt ár 2028.
Lesa meira
Breyttu druslunni í djásn hjá Brimborg!

Breyttu druslunni í djásn hjá Brimborg!

Breyttu druslunni í djásn! Brimborg býður eigendum keyrsluhæfra notaðra bíla sem eru skráðir og í umferð að lágmarki 500.000 kr. uppítökuverð upp í notaðan bíl í eigu Brimborgar dagana 2.-15. janúar 2026.
Lesa meira

Lokun 2G- og 3G-farsímanetkerfa á Íslandi

Breytingin hefur ekki áhrif á akstursöryggi né virkni annarra kerfa í bifreiðinni.
Lesa meira
Hér finnur þú allar upplýsingar um nýja kílómetragjaldið.

Allt um kílómetragjaldið á örskotsstund

Alþingi hefur samþykkt ný lög sem taka gildi 1. janúar 2026 og fela í sér að öll ökutæki greiða kílómetragjald eftir akstri – óháð orkugjafa. Breyting á kílómetragjaldinu er mikil kerfisbreyting og er ástæða hennar að vegna aukins fjölda rafbíla, sparneytinna tengiltvinnbíla og almennt sparneytnari ökutækja þá hafa tekjur ríkissjóðs af ökutækjum lækkað umtalsvert og þar af leiðandi hafa fjármunir til viðhalds vega verið skornir niður. Undanfarin ár hefur verið veitt um 12 milljörðum til viðhalds vega en árleg þörf er nær því að vera 20 milljarðar sem hefur leitt til mikillar innviðaskuldar. Með nýju km gjaldi verða innheimtar auknar tekjur og strax á árinu 2025 jókst fjárheimild til viðhalds í 15 milljarða. Á árinu 2026 verður hún skv. fjárlagafrumvarpi 17,5 milljarðar og frá árinu 2027 til ársins 2030 verður árleg upphæð 20 milljarðar skv. samþykktri fjármálaáætlun. Hér er það mikilvægasta fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem eiga eða leigja bíl og vilja ná utan um áhrifin á nokkrum mínútum.
Lesa meira
Nú er rétti tíminn til að tryggja sér nýjan bíl fyrir áramót

Tryggðu þér nýjan bíl fyrir áramót

Um næstu áramót verða miklar breytingar á bæði styrkjum og vörugjöldum. Styrkur til kaupa á rafbíl lækkar um áramót, vörugjöld bensín-, dísil- og tengiltvinnbíla (PHEV) hækka og gengi krónunnar hefur verið að veikjast. Því er nú rétti tíminn til að tryggja sér nýjan bíl á betra verði. Gakktu frá kaupum á nýjum bíl og tryggðu þér bestu kjörin áður en nýtt ár gengur í garð.
Lesa meira
Flandur, Bílorka, MAX1 og Brimborg á Iðnaðarsýningunni 2025

Flandur, Bílorka, MAX1 og Brimborg á Iðnaðarsýningunni 2025 dagana 9.-11. október. Sjáumst!

Flandur, Bílorka, MAX1 og Brimborg verða á Iðnaðarsýningunni 2025 í Laugardalshöll 9.–11. október á bás B-21. Sýningin er helsti vettvangur fyrirtækja og einstaklinga til að kynna lausnir á sviði mannvirkja, orku, innviða, hönnunar og vistvænna lausna.
Lesa meira

Innköllun vegna gallaðra Takata loftpúða

⚠️ Er innköllun á bílnum þínum? Gói, spjallmennið okkar, getur hjálpað þér að finna svarið: http://bit.ly/47E7gem
Lesa meira

Tafarlaus stöðvun á notkun Citroën C4 vegna Takata loftpúða

Stellantis, framleiðandi Citroën bifreiða, hefur tilkynnt tafarlausa stöðvun á notkun Citroën C4 ökutækja sem framleidd voru á árunum 2010 til 2018.
Lesa meira

Mazda kynnir þriðju kynslóð CX-5

Mazda hefur nú afhjúpað nýjan CX-5, þriðju kynslóð vinsælasta bíls merkisins á heimsvísu. Nýja útgáfan einkennist af þróuðu og skörpu útliti, en heldur áfram að vera auðþekkjanleg sem CX-5.
Lesa meira