Rafbílastyrkur lækkar eftir 31. október. Tryggðu þér nýjan rafbíl fyrir mánaðamót.
Nú er rétti tíminn til að tryggja sér nýjan rafbíl áður en rafbílastyrkur lækkar og reglur um hámarksverð styrkhæfra bíla breytast. Frá og með 1. nóvember 2026 lækkar styrkur til kaupa á nýjum rafbíl úr 500.000 krónum í 400.000 krónur og hámarksverð styrkhæfra bíla lækkar úr 10 milljónum króna í 8 milljónir króna. Því er um að gera að bregðast við núna og nýta hagstæðari styrkjareglur áður en breytingarnar taka gildi.
Hærri rafbílastyrkur fram að mánaðamótum
Samkvæmt nýrri reglugerð sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnti 14. október verða breytingar til lækkunar á styrkjum Loftslags- og orkusjóðs frá og með 1. nóvember.
Styrkur vegna kaupa á nýjum rafmagnsfólksbíl lækkar um 100.000 krónur og jafnframt lækkar hámarksverð styrkhæfra bíla um tvær milljónir króna. Þetta þýðir að kaupendur rafbíla á verðbilinu 8–10 milljónir króna verða ekki lengur styrkhæfir samkvæmt nýju reglunum.
Þau sem hyggja á rafbílakaup ættu því að nýta tímann fram að mánaðamótum og kanna möguleika sína á að tryggja sér hærri styrk áður en nýjar reglur taka gildi.
Fjölbreytt úrval rafbíla hjá Brimborg
Hjá Brimborg er auðvelt að skipta yfir í rafbíl. Við bjóðum fjölbreytt úrval rafbíla í öllum stærðum og verðflokkum, tökum gamla bílinn upp í og bjóðum fjölbreytt fjármögnunarúrræði.
Söluráðgjafar okkar aðstoða þig við að finna rétta bílinn og leiða þig í gegnum allt ferlið, frá vali á bíl til afhendingar.
Skoðaðu úrval rafbíla hjá Brimborg
Tíminn til að bregðast við er núna
Það eru aðeins rúmar tvær vikur þar til nýjar reglur taka gildi. Með því að ganga frá rafbílakaupum fyrir mánaðamót geturðu átt möguleika á að nýta hærri styrk og hagstæðari verðmörk, að uppfylltum skilyrðum Loftslags- og orkusjóðs.
Komdu og prófaðu nýjan rafbíl hjá Brimborg
Söluráðgjafar Brimborgar taka vel á móti þér og veita faglega ráðgjöf um rafbíla, fjármögnun og möguleika á uppítöku.
Komdu til okkar eða skoðaðu úrvalið í Vefsýningarsal Brimborgar og tryggðu þér nýjan rafbíl áður en styrkurinn lækkar í lok dags 31. október!