Fara í efni

Rafbílasýning Peugeot laugardaginn 18. apríl

Peugeot hefur sett sér metnaðarfull markmið í rafvæðingu sinna bíla og býður breitt úrval rafbíla sem hafa reynst vel í íslenskum aðstæðum.

Meiri drægni, aukinn hleðsluhraði og lægri rekstrarkostnaður gera rafbíla Peugeot að öflugum valkosti.

Við verðum með gríðarlega spennandi tilboð á öllum rafbílum frá Peugeot, komdu og gerðu frábær kaup, sölumenn okkar eru í samningastuði.

Kynntu þér rafbíla Peugeot

Á sýningunni verða Peugeot E-2008, E-3008 og E-5008 ásamt rafknúnum sendibílum.

Fjölbreyttar útfærslur eru í boði með ríkulegum búnaði, háþróaðri tækni og akstursupplifun sem setur ökumanninn í forgrunn.

Peugeot E-3008 og E-5008 eru fáanlegir í GT Exclusive AWD útfærslum með tveimur rafmótorum og fjórhjóladrifi sem tryggir aukinn kraft og stöðugleika.

Peugeot E-3008 býður frábæra drægni, hraða hleðslu og nýja kynslóð af Panoramic i-Cockpit þar sem öll stjórntæki og skjáir eru í sjónlínu ökumanns og skapa einstaka upplifun í akstri.

Peugeot E-5008 er mjög rúmgóður sjö sæta rafbíll með sveigjanlegu innanrými, miklu farangursrými og þægindum sem henta vel fyrir fjölskyldur og lengri ferðir.

Peugeot E-2008 er nettur og lipur rafbíll sem veitir einstaka akstursánægju, góða drægni og hágæða innra rými með Peugeot i-Cockpit.

Rafsendibílar

Peugeot býður einnig öflugt úrval rafsendibíla í mismunandi stærðum. Lausnir sem sameina hagkvæmni, notagildi og áreiðanleika í daglegum rekstri.

Hagstæð kjör á hleðslustöðvum, uppsetningu og hraðhleðslu
Peugeot á Íslandi og Brimborg bjóða viðskiptavinum sínum sérlega hagstæð kjör á hleðslustöðvum og uppsetningu þeirra ásamt sérkjörum í hraðhleðsluneti Brimborgar Bílorku. Söluráðgjafar Peugeot veita allar upplýsingar.

Velkomin á rafbílasýningu Peugeot

Sýningin fer fram laugardaginn 18. apríl frá kl. 12 til 16:

  • Peugeot á Íslandi - Reykjavík, Bíldshöfði 8
  • Peugeot á Íslandi - Akureyri, Tryggvabraut 5

Öll eru hjartanlega velkomin að koma og skoða rafbíla Peugeot og upplifa heillandi gæði, tækni og akstursánægju.