Fara í efni

Breyttu druslunni í djásn

Breyttu druslunni í djásn! Brimborg býður eigendum keyrsluhæfra notaðra bíla sem eru skráðir og í umferð að lágmarki 500.000 kr. uppítökuverð upp í nýjan bíl á lager hjá Brimborg eða notaðan bíl í eigu Brimborgar. sem er til sölu í Vefsýningar og merktur með "Drusla í djásn" stimpli. Aðeins er hægt að setja eina druslu í einu að verðmæti 500.000 kr. upp í kaup á bíl. Drusla í djásn gildir fyrir nýja bíla á lager og notaða bíla merkta sem "Drusla í djásn".

Fáðu þér öruggari, sparneytnari og mengunarminni bíl. Leitaðu að völdum djásnum með „Drusla í djásn“ stimplinum í Vefsýningarsal nýrra eða notaðra bíla hjá Brimborg og finndu rétta bílinn fyrir þig.

Hér finnur þú alla bíla í sölu hjá Brimborg í Vefsýningarsölum nýrra og notaðra bíla sem eru merktir sem "Drusla í djásn": 

Vefsýningarsalur notaðra bíla

Vefsýningarsalur nýrra bíla

Nýttu þér „Breyttu druslunni í djásn“ skiptitilboð Brimborgar

Hjá Brimborg er mikið úrval nýrra bíla á lager og notaðra bíla og allir notaðir bílar eru ástandsskoðaðir. Við bjóðum hagstætt verð og framúrskarandi þjónustu.

Við bjóðum:

  • Nýja bíla á lager frá sjö framleiðendum: Ford, Volvo, Mazda, Citroën, Peugeot, Opel og Polestar.
  • Notaða, yfirfarna bíla til sölu í miklu úrvali á hagstæðu verði
  • Uppítöku á gamla bílnum, skráðum og í umferð, fyrir að lágmarki 500.000 kr.
  • Allt að 80% fjármögnun í allt að 8 ár

Uppítökubílarnir fara í eitt af þremur viðurkenndum ferlum hjá Brimborg

  • Í endurnot: Bestu bílarnir eru yfirfarnir, lagfærðir og færðir í betra ástand fyrir endursölu eða seldir til endursöluaðila
  • Í endurvinnslu: Aðrir eru seldir áfram til bílapartasala eða annarra aðila sem geta gert sér mat úr nothæfum hlutum bílsins
  • Í brotajárn: Þeir bílar sem lítið er eftir í eru færðir í brotajárn sem fer til endurvinnslu