Fara í efni

Vél ársins þriðja árið í röð hjá Peugeot

PSA Group, sem framleiðir Peugeot bifreiðar, hlaut nýverið hin eftirsóttu VÉL ÁRSINS (Engine of the Year) verðlaun.

PSA Group, sem framleiðir Peugeot bifreiðar, hlaut nýverið hin eftirsóttu VÉL ÁRSINS (Engine of the Year) verðlaun fyrir 1,2 lítra 3 strokka Turbo PureTech bensínvél sína.

Þetta er þriðja árið í röð sem PureTech bensínvél PSA Group er valin vél ársins í flokki 1-1,4 lítra véla. Þetta er í 18 sinn sem verðlaunin eru veitt og er það alþjóðleg dómnefnd blaðamanna sem velur ár hvert vél ársins. 

Framúrskarandi og umhverfisvæn

1,2 lítra vélin er þekkt fyrir framúrskarandi akstursupplifun, jafnvel á lægsta snúningshraða. Stöðug tækniþróun er í fyrirrúmi hjá PSA Group og ný kynslóð vélarinnar með auknum afköstum og lægri eldsneytisnotkun kemur í lok árs 2017.


Vefspjall