Fara í efni

Rafbílastyrkurinn allt að 400.000 kr. við kaup á nýjum rafbíl

Rafbílastyrkurinn allt að 400.000 kr. við kaup á nýjum rafbíl
Rafbílastyrkurinn allt að 400.000 kr. við kaup á nýjum rafbíl

Rafbílastyrkurinn hefur ekki fallið úr gildi. Kaupendur nýrra rafmagnsfólksbíla geta áfram sótt um allt að 400.000 króna styrk úr Loftslags- og orkusjóði, að uppfylltum skilyrðum. Breyttar fjárhæðir og verðmörk tóku gildi 1. nóvember 2026.

Áfram stuðningur við rafbílakaup

Samkvæmt nýjum reglum er styrkur vegna kaupa á nýjum rafmagnsfólksbíl í flokki M1 allt að 400.000 krónur og verðþak styrkhæfra fólksbíla er 8 milljónir króna. Fyrir 1. nóvember var styrkurinn allt að 500.000 krónur og verðþakið 10 milljónir króna.

Það er því áfram hægt að nýta rafbílastyrk við kaup á bíl sem uppfyllir skilyrðin. Nánar um breyttar reglur hjá Umhverfis- og orkustofnun.

Hvernig er sótt um styrkinn?

Sótt er um rafbílastyrk á Ísland.is eftir nýskráningu bílsins. Sækja þarf um innan 12 mánaða frá nýskráningu og er styrkurinn greiddur skráðum aðaleiganda. Hvert ökutæki getur aðeins fengið styrk einu sinni.

Samþykktardagur umsóknar ræður því hvaða styrkfjárhæð og reglur gilda. Kaupdagur eða pöntunardagur tryggir því ekki rétt til styrks samkvæmt eldri reglum. Sjá leiðbeiningar Umhverfis- og orkustofnunar.

Finndu rafbílinn þinn hjá Brimborg

Hjá Brimborg finnur þú fjölbreytt úrval rafbíla í mismunandi stærðum og verðflokkum. Við tökum gamla bílinn upp í og bjóðum fjölbreytt fjármögnunarúrræði.

Söluráðgjafar okkar aðstoða þig við að finna bíl sem hentar þínum þörfum og veita nánari upplýsingar um rafbíla, uppítöku og fjármögnun.

Komdu og prófaðu nýjan rafbíl hjá Brimborg og kynntu þér möguleikann á allt að 400.000 króna rafbílastyrk.

Skoðaðu úrval rafbíla í Vefsýningarsal Brimborgar.