Fara í efni

Polestar 2 annar mest seldi rafbíllinn á Íslandi 2022

Polestar 2 100% rafbíll var annar mest seldi rafbíllinn á Íslandi árið 2022. Polestar 2 er hágæða rafmagnsbíll með afburða aksturseiginleika, með allt að 542 km drægni á rafmagni og er fáanlegur framdrifinn og fjórhjóladrifinn með tveimur rafmóturum.  Polestar bílarnir hafa verið hlaðnir lofi víðsvegar um heiminn fyrir fallega hönnun, góða aksturseiginleika, mikinn staðalbúnað, hagstætt verð og mikið öryggi en Polestar 2 hefur m.a. hlotið 5 stjörnur í EuroNCAP árekstraprófinu.

462 Polestar 2 afhentir árið 2022

Brimborg kynnti Polestar á Íslandi fyrst í nóvember 2021 og fyrstu afhendingar á Polestar á Íslandi fóru fram í febrúar 2022 og því hægt að segja að viðtökurnar á Íslandi hafi verið virkilega góðar en í heildina voru afhentir 462 Polestar 2 árið 2022. Á heimsvísu seldust yfir 50.000 eintök sem var yfir útgefnum markmiðum frá Polestar. Því má segja að árið 2022 heilt yfir var einstaklega gott hjá Polestar en árið 2023 verður ekki síður spennandi þar sem við fáum fyrstu Polestar 3 bílana í sýningarsalinn okkar og Polestar 4 verður kynntur.

Lausir til afhendingar strax

Í Vefsýningarsalnum má finna nokkra Polestar 2 lausa til afhendingar strax. Smelltu og skoðaðu úrvalið í Vefsýningarsalnum.

Polestar í Vefsýningarsal

Bóka reynsluakstur

Polestar Reykjavík opnaði í júní 2022

Brimborg opnaði Polestar Reykjavík, sérhæfðan, sjálfbæran rafbílasal fyrir Polestar rafbíla í júní á þessu ári en þess má geta að á þaki byggingarinnar er sjálfbær raforkuframleiðsla í stærsta sólarorkuveri á Íslandi. Sýningarsalurinn er einnig fyrsti BREEAM umhverfis- og innivistarvottaði bílasalurinn á Íslandi með sjálfbæra framleiðslu á heitu vatni með varmadælu sem hitar upp hreint útiloftið fyrir loftræstikerfið.

         

Brimborg umboðsaðili sjö rafbílaframleiðenda

Brimborg er umboðsaðili Volvo, Polestar, Ford, Mazda, Opel, Citroën og Peugeot og bjóða allir framleiðendur Brimborgar upp á rafbíla í sinni vörulínu.

Vegna mikils úrvals rafbíla hjá Brimborg og öflugrar þjálfunar hafa starfsmenn Brimborgar afburða þekkingu á rafbílum. Þú getur fundið allar gerðir rafbíla, allt um hleðslustöðvar og hleðsluhraða, allt um uppsetningu og kostnað við hleðslustöðar, hvað það kostar að hlaða rafbíl og allt um drægni og áhrif ytri aðstæðna með því að smella hér.

Rafbílar til kaups eða á langtímaleigu

Rafbílar frá Brimborg fást sem fólksbílar, jeppar og sendibílar og Brimborg býður rafbíla bæði til kaups eða á langtímaleigu og tekur Brimborg allar gerðir eldri bíla upp í kaup á nýjum rafbíl.

Góð drægni og mikill hleðsluhraði einkennir rafbíla frá Brimborg

Rafbílar frá Brimborg eru þekktir fyrir gæði, góða drægni á rafmagni og mikinn hleðsluhraða sem gerir ökumönnum rafbíla frá Brimborg auðvelt með að notast við rafbíla hvar sem er á landinu.

Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan og kynntu þér úrval nýrra bíla í Vefsýningarsal Brimborgar:

Vefsýningarsalur nýrra bíla


Vefspjall