Fara í efni

Opel rafmagnssendibílarnir vinsælastir tvö ár í röð

Opel rafmagnssendibílarnir vinsælastir tvö ár í röð
Opel rafmagnssendibílar vinsælastir á Íslandi árin 2022 og 2023

Opel sendibílar eru vinsælustu rafknúnu atvinnubílarnir á Íslandi árið 2023 annað árið í röð með 28% markaðshlutdeild og nú fást þeir með 500.000 króna orkuskiptastyrk frá Orkusjóði. Opel rafsendibílar státa af þýskum gæðum sem eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðunni, framúrskarandi drægni og miklum hleðsluhraða. Sparneytni, lágur rekstrarkostnaður, fyrirtaks vinnuaðstaða með góðu aðgengi, hámarks nýting, ríkulegur búnaður og fjölmargar stærðarútfærslur tryggja m.a. vinsældir Opel rafmagnssendibíla.

Taktu þátt í orkuskiptunum með Opel rafsendibíl
Þú getur stólað á fyrsta flokks gæði og fyrirmyndarþjónustu Opel fyrirtækjalausna hjá Brimborg. Framúrskarandi drægni, góður hleðsluhraði, fagleg þjónusta og ráðgjöf við kaupendur og við uppsetningu hleðsluinnviða. Viðskiptavinir okkar njóta sérþekkingar Brimborgar í hleðslulausnum, sérkjörum á hleðslulausnum og uppsetningu ásamt sérkjörum á hraðhleðslustöðvum Brimborgar Bílorku. Þannig draga þeir úr neikvæðum áhrifum á umhverfið með umhverfisvænni, íslenskri orku með lágu kolefnisspori.

Styrkur frá Orkusjóði til rafsendibílakaupa
Fyrirtæki geta nú sótt um 500.000 kr. styrk frá Orkusjóði til kaupa á rafsendibíl og ef bíllinn er á rauðum númeraplötum geta þau að auki innskattað 24% virðisaukaskatt af kaupverðinu ásamt því að innskatta allan rekstrarkostnað sendibílsins.

Styrkurinn nýtist líka fyrir Opel sendibíla sem fást á langtímaleigu hjá Brimborg bílaleigu á rauðum númerum og á sama hátt verður hægt að innskatta leigugreiðslur og rekstrarkostnað.

 

Opel Vivaro-e rafsendibíll
Opel Vivaro-e er vinsælasti rafsendibíllinn á Íslandi tvö ár í röð og er 100% hreinn rafmagnssendibíll með allt að 330 km drægni á hreinu rafmagni og hraðhleðslumöguleika. Opel Vivaro-e er fáanlegur í tveimur lengdum, með rennihurð á báðum hliðum og rúmar auðveldlega þrjú vörubretti. Opel Vivaro-e er með 1000 kg dráttargetu og 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að kynna þér Opel Vivaro-e nánar.

Smelltu og kynntu þér Opel Vivaro-e

Skoðaðu Opel Vivaro-e í Vefsýningarsalnum

 

Opel Combo-e rafsendibíll
Opel Combo-e er 100% hreinn rafmagnssendibíll með allt að 275 km drægni á hreinu rafmagni og hraðhleðslumöguleika. Combo-e er fáanlegur í tveimur lengdum, með rennihurð á báðum hliðum og rúmar auðveldlega tvö vörubretti. Opel Combo-e er með 750 kg dráttargetu og 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að kynna þér Opel Combo-e nánar.

Smelltu og kynntu þér Opel Combo-e

Skoðaðu Opel Combo-e í Vefsýningarsalnum

 

Uppitíminn skiptir máli

Brimborg leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu þar sem hraði, hagkvæmni og þægindi eru í fyrirrúmi svo tryggt sé að Opel rafsendibíllinn sé alltaf til þjónustu reiðubúinn.

Smelltu og kynntu þér Opel sendibíla


Vefspjall