Fara í efni

Nýr Citroën ë-C4 100% rafbíll forsýndur á einstaklega hagstæðu verði frá 4.090.000 kr.

Nýr Citroën ë-C4 100% rafbíll forsýndur á einstaklega hagstæðu verði frá 4.090.000 kr.
Nýr Citroën ë-C4 100% rafbíll með 7 ára ábyrgð
Brimborg kynnir nýjan Citroën ë-C4 100% rafbíl á einstaklega hagstæðu verði frá 4.090.000 kr. með 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á 50kWh drifrafhlöðunni

Nýr Citroën ë-C4 rafbíll með 350 km drægni á 100% hreinu rafmagni

Brimborg kynnir nýjan Citroën ë-C4 100% rafbíl á einstaklega hagstæðu verði frá 4.090.000 kr. með 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á 50kWh drifrafhlöðunni. Drægni skv. WLTP mælingu er 350 km á 100% hreinu rafmagni. Citroën ë-C4 er framdrifinn, frábær í akstri í snjó og því einstaklega hentugur við íslenskar aðstæður. Citroën ë-C4 rafbíll er með 15,6 cm veghæð sem skapar þægilegt aðgengi og þegar inn er komið blasir við einstaklega nútíma- og tæknilegt innra rými með breiðum, mjúkum sætum, forhitun og ríkulegum staðalbúnaði. Citroën ë-C4 rafbíll  er sjálfskiptur með 136 hestafla, hljóðlátri rafmagnsvél og 260 Nm togkrafti.

  • 350 km drægni á 100% hreinu rafmagni
  • 30 mínútur í 80% drægni í 100 kW hraðhleðslustöð
  • Snjallmiðstöð og fjarstýrð forhitun tryggir ávallt heitan bíl
  • Ríkulegur staðalbúnaður og þægindi í hæsta flokki
  • Verð frá aðeins: 4.090.000 kr. 

Brimborg býður bílaskipti úr eldri bíl upp í nýjan Citroën ë-C4 sem gildir sem útborgun og með hagstæðri grænni fjármögnun er mánaðargreiðslan aðeins 26.620 kr. á mánuði. Mánaðargreiðslan í þessu dæmi miðast við uppítöku á eldri bíl á 2.000.000 kr. og 8 ára lán og er hlutfallstala kostnaðar í dæminu 5,41%. 

KYNNTU ÞÉR Ë-C4

SKOÐA ÚRVAL Í VEFSÝNINGARSAL

Citroën ë-C4

Löng forsýning frá 23. – 27. febrúar í sýningarsal Citroën að Bíldshöfða 8

Forsala á Citroën ë-C4 100% rafbíl hefur gengið afar vel og hefur fjöldi kaupanda þegar tryggt sér nýjan ë-C4 rafbíl til afhendingar á næstu vikum. Nú er loks hægt að skoða og prófa því fyrstu tveir sýningar- og reynsluakstursbílarnir eru komnir í sýningarsal Citroën að Bíldshöfða 8 í Reykjavík.

Citroën ë-C4 tilnefndur sem BÍLL ÁRSINS Í EVRÓPU 2021

Glænýr Citroën C4 er tilnefndur: BÍLL ÁRSINS Í EVRÓPU 2021. Í forvali voru 29 bílar og því frábær árangur hjá Citroën að komast í 7 bíla úrslit.
 
Bíll ársins
 

Ríkulegur staðalbúnaður og þægindi í hæsta flokki

Citroën bílar eru þekktir fyrir þægindi í hæsta flokki og er Citroën ë-C4 rafbíll þar engin undantekning. Innrétting er nútímaleg og tæknileg. Ríkulegur staðalbúnaður prýðir Citroën ë -C4. Í grunnbúnaði er snjallmiðstöð með tímastillingu og forhitun sem tryggir heitan bíl þegar hentar, varmadæla sem eykur virkni miðstöðvar og drægni bíls, 10” snjallsnertiskár í mælaborði, snjallhemlun sem virkar í myrkri og greinir gangandi og hjólandi vegfarendur, ökumannsvaki, hraðastillir, veglínustýring sem aðstoðar við að halda stefnu á vegi, tölvustýrð miðstöð með loftkælingu og 18” álfelgur svo fátt eitt sé nefnt.

Citroën ë-C4

Hin byltingarkennda fjöðrun Citroën ë-C4 er afar einföld en snjöll og áhrifarík og skilar eintaklega mjúkri og skemmtilegri akstursupplifun. Hefðbundinn fjöðrunarbúnaður er byggður upp af gormi og dempara með gúmmípúða í enda fjöðrunar en Citroën bætir við vökvastoppara að ofan og neðan í demparanum sjálfum.

Citroën ë-C4

Snjallmiðstöð og fjarstýrð forhitun tryggir heitan bíl þegar hentar

Citroën ë-C4 rafbíll er með snjallmiðstöð með tímastillingu á forhitun á innra rými sem tryggir ávallt heitan bíl. Hægt er að tímastilla forhitun alla vikudagana fyrirfram, einfalt og þægilegt. Fjarstýrð virkni gerir kleift að fjarstýra forhitun í MyCitroën® appinu. Einnig er einfalt er að tímasetja, stöðva og virkja hleðslu í MyCitroën® appinu ásamt því að vera með yfirsýn um bílinn þ.á.m. stöðu á drægni, hleðslustöðu, þjónustuyfirlit og panta tíma á þjónustuverkstæði.

Citroën ë-C4

Aðeins 30 mínútur í 80% drægni í 100 kW hraðhleðslustöð

Hægt er að fullhlaða drifrafhlöðu Citroën ë-C4 með íslenskri raforku á 5 til 7,5 klukkustundum í öflugri heimahleðslustöð með eins fasa 7,4 kW eða þriggja fasa 11 kW innbyggðri hleðslustýringu eða í 80% drægni á 30 mínútum í 100 kW hraðhleðslustöð. Rafmagnsvélin gerir það mögulegt að endurheimta stöðuorku sem verður tiltæk við hemlun eða þegar slegið er af gjöfinni. Þá hleður bíllinn drifrafhlöðuna og nýtir þannig orku sem ella hefði farið til spillis og eykur þannig drægni bílsins á hreinu rafmagni. (B-stilling í sjálfskiptingu).

Citroën ë-C4

Einstaklega hagstætt verð frá 4.090.0000 kr. og hagstæð græn fjármögnun

Brimborg býður Citroën ë-C4 rafbíl á einstaklega hagstæðu verði eða aðeins frá 4.090.000 kr. Brimborg býður bílaskipti úr eldri bíl upp í nýjan Citroën ë-C4 100% rafbíl sem gildir sem útborgun og með grænni fjármögnun er mánaðargreiðslan aðeins 26.620 kr. á mánuði. Með bílaskiptum úr eldri bíl í nýjan þá sparast mikið í eldsneytiskaupum og lægri bifreiðagjöldum sem léttir mánaðargreiðsluna enn frekar. Mánaðargreiðslan í þessu dæmi miðast við innborgun eða uppítöku á eldri bíl á 2.000.000 kr. og 8 ára lán og er hlutfallstala kostnaðar í þessu dæmi 5,41%. 

Hleðslustöð er auðvelt að fjármagna með bílakaupunum og fær kaupandi virðisaukaskattinn endurgreiddan bæði af hleðslustöðinni og uppsetningu hennar.

Aldrei hefur verið auðveldara að taka þátt í orkuskiptunum.

Citroën ë-C4

Örugg gæði Citroën með lengri ábyrgð hjá Brimborg

Örugg gæði Citroën ë-C4 100% rafbíls eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðunni. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðanda.

Auðvelt að skoða úrvalið af nýjum Citroën ë-C4 í Vefsýningarsalnum

Í Vefsýningarsal Brimborgar er að finna alla Citroën ë-C4 rafbíla sem eru væntanlegir til landsins. Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr Vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Citroën. 

Brimborg hefur lagt sífellt meiri áherslu á forpöntun nýrra bíla sem hefur gert það að verkum að bílverð lækkar vegna lægri birgðakostnaðar og á sama tíma geta kaupendur hannað bílana nákvæmlega að sínum óskum hvað varðar lit, innréttingu og búnað. Söluráðgjafar Citroën aðstoða viðskiptavini við að setja saman draumabílinn.

KYNNTU ÞÉR Ë-C4

SKOÐA ÚRVAL Í VEFSÝNINGARSAL

 

 

Vefspjall