Fara í efni

Notaðir tengiltvinnbílar (PHEV) nú hagstæðustu bílakaupin

Notaðir tengiltvinnbílar (PHEV) nú hagstæðustu bílakaupin
Notaðir tengiltvinnbílar (PHEV) nú hagstæðustu bílakaupin

Stjórnvöld hækkuðu ekki gjöld á tengiltvinnbíla (PHEV) um áramótin. Því er kaupverð þeirra mjög hagstætt, þeir njóta lægra kílómetragjalds (2 kr. per km) og Brimborg býður nú hagstætt skiptitilboð í notaðan PHEV bíl.

Auðvelt að keyra tengiltvinnbíl (PHEV) að mestu á rafmagni

Meðalakstur heimilis á Íslandi er um 38 km á dag og með góðri hleðsluaðstöðu við heimili eða vinnustað er auðvelt að keyra tengiltvinnbíl (PHEV) að mestu á rafmagni. Íslensk heimili eru að skipta yfir í rafmagnaða bíla og setja upp hleðslustöðvar sem skilar sér í helmingi lægri aksturskostnaði miðað við venjulega bensínbíla auk þess sem rafmagnaðir bílar draga úr loftmengun og minnka koltvísýringslosun.

Nýttu þér hagstætt PHEV skiptitilboð Brimborgar

Við bjóðum:

  • Notaða, yfirfarna tengiltvinnbíla til sölu í miklu úrvali á hagstæðu verði
  • Uppítöku á gamla bílnum
  • Allt að 80% fjármögnun í allt að 8 ár
  • Sérkjör á 3 fasa heimahleðslustöð með kapli sem nýtist bæði fyrir PHEV bíla og hreina rafbíla á aðeins kr. 67.915 kr. Við gerum fast verðtilboð í uppsetningu. Hleðslustöð og uppsetningu er hægt að fjármagna með bílnum.

Smelltu hér til að skoða alla notaða tengiltvinnbíla til sölu hjá Brimborg

Íslensk heimili skipta yfir á íslenskt rafmagn og stíga inn í framtíðina

Fleiri og fleiri íslensk heimili skipta nú bensínbílnum yfir í umhverfisvænni og sparneytnari tengiltvinnbíl með lægri rekstrarkostnaði. Með uppsetningu hleðslustöðvar við heimili nýtist tengiltvinnbíllinn einstaklega vel sem rafbíll og um leið lærist umgengni um notkun og hleðslu rafbíls. Þannig undirbýr heimilið sig undir að skipta að lokum yfir í hreinan rafbíl og leggur sitt af mörkum til að draga úr loftmengun og minnka koltvísýringslosun.

Helmingi lægri aksturskostnaður PHEV bíla

Samanlagður eldsneytis- og kílómetragjaldskostnaður meðalheimilis við að aka tengiltvinnbíl að tveimur þriðju hlutum á rafmagni er helmingi lægri en eldsneytiskostnaður venjulegs bensínbíls. Í krónum talið getur sparnaðurinn numið um 180 þús. krónum á ársgrundvelli.

Forsendur útreiknings:

  • Akstur á dag 38 km, akstur á ári 14.000 km
  • Verð á bensínlítra 320 kr.
  • Verð á kWh við heimahleðslu 17 kr.
  • Eyðsla bensínbíls 7 lítrar per 100 km.
  • Orkunotkun PHEV bíls:
    • Bensíneyðsla 7,3 lítrar per 100 km miðað við 30% akstur á bensíni
    • Rafmagnsnotkun: 20 kWh per 100 km miðað við 70% akstur á rafmagni
  • Heildar orkukostnaður bensínbíls á ári: 313.600 kr.
  • Heildar orku- og kílómetragjaldskostnaður PHEV bíls á ári: 131.432 kr.
    • Mismunur PHEV bílnum í hag á ári: 182.168 kr.

Smelltu hér til að skoða alla notaða tengiltvinnbíla til sölu hjá Brimborg


Vefspjall