Fara í efni

Íslensk fyrirtæki snúa sér að rafsendibílum, Brimborg með 62% hlutdeild

Íslensk fyrirtæki snúa sér að rafsendibílum, Brimborg með 62% hlutdeild
Fyrirtæki lækka rekstrarkostnað og draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfi með rafbílum frá Brimborg

Íslensk fyrirtæki hafa keypt 113,5% fleiri rafsendibíla á árinu miðað við sama tíma í fyrra og flest þeirra kaupa rafsendibíla af Brimborg. Sala Brimborgar á rafsendibílum jókst um 145% frá fyrra ári og er hlutdeild umboðsins 62% af rafsendibílamarkaði.

Fleiri og fleiri fyrirtæki eru að horfa til sjálfbærni og vilja draga úr losun koltvísýrings með því að minnka notkun á jarðefnaeldsneyti um leið og þau spara umtalsvert í orkukostnaði og annari þjónustu við bílana. Rafsendibílar valda engri loftmengun sem er heilsusamlegra fyrir starfsmenn fyrirtækjanna auk þess sem vinnuumhverfið verður betra með minni hávaða og titringi við akstur.

Ástæðan fyrir velgengni Brimborgar í sölu rafbíla er áhersla umboðsins á úrval rafbíla frá stórum, alþjóðlegum, bílaframleiðendum sem eru Peugeot, Opel, Citroën og Ford. Auk þessa hafa starfsmenn Brimborgar hafa byggt upp einstaka reynslu og þekkingu á rafbílum og hleðsluinnviðum.

Ford, Peugeot, Citroën og Opel bjóða einnig upp á úrval rafknúinna fólksbíla auk fyrrnefndra rafsendibíla. Brimborg er einnig umboðsaðili Volvo Trucks sem er í hópi stærstu vörubíla- og flutningabílaframleiðenda í heimi og Brimborg hóf nýlega að bjóða rafknúna Volvo vöru- og flutningabíla auk þess sem Brimborg býður rafknúnar vinnuvélar frá Volvo Construction Equipment.

Fyrirtæki leita til Brimborgar við kaup á rafknúnum fólksbílum, sendibílum, vöru- og flutningabílum og vinnuvélum vegna áralangrar reynslu og þekkingar á þjónustu við atvinnulífið. Forysta Brimborgar byggir á úrvali bíla og tækja fyrir atvinnulífið sem uppfylla margvíslegar þarfir fyrirtækja, áralangri reynslu sérfræðinga Brimborgar í atvinnubílum, sérfræðiþekkingu á rafbílum þar sem Brimborg er stærst í rafbílum á Íslandi og ekki síður vegna sérfræðiþekkingar við rekstur og uppbyggingu hleðsluinnviða fyrir rafbíla.

Skoðaðu úrval Ford sendibíla

Skoðaðu úrval Opel sendibíla

Skoðaðu úrval Peugeot sendibíla

Skoðaðu úrval Citroën sendibíla

Skoðaðu úrval Volvo vörubíla

Rafsendibílar eru ódýrari í rekstri

Rekstrarkostnaðurinn skiptir máli og þar eru rafsendibílar frá Brimborg í sérflokki. Framúrskarandi þjónusta Brimborgar, lág bilanatíðni og ódýr íslensk raforka lækkar rekstrarkostnaðinn og dregur úr neikvæðum áhrifum á umhverfið. Og að lokum er mikilvægt að hafa endursöluverðið í huga því að góð endursala og hátt endursöluverð skiptir máli fyrir heildarlíftímakostnað sendibílsins.

Prófaðu nýjan sendibíl hjá Brimborg í dag. Sendu fyrirspurn á söluráðgjafa og fáðu nánari upplýsingar um nýja sendibíla hjá Brimborg. Söluráðgjafi svarar þér um hæl.

Skoðaðu úrval sendibíla í Vefsýningarsalnum

Vertu leiðtogi í orkuskiptum með orkuskiptalausnum frá Brimborg!

Láttu þitt fyrirtæki vera leiðtoga í orkuskiptum.

Ísland hefur skrifað undir alþjóðlegar skuldbindingar um að draga úr kolefnislosun á hverju ári til ársins 2030 og ef markmiðin nást ekki þýðir það umtalsverð fjárútlát fyrir íslenska ríkiskassann. Brimborg leggur áherslu á að vera leiðtogi í orkuskiptum og bjóða heimilum og fyrirtækjum orkuskiptalausnir í samgöngum. Ísland er í einstakri stöðu með aðgang að íslenskri, endurnýjanlegri, orku, fyrir bíla.

Í samræmi við markmið í Umhverfisstefnu Brimborgar, Visthæf skref, sem innleidd var árið 2007 þá hefur Brimborg lagt mikla áherslu á að hraða orkuskiptum á bílamarkaði með forgangi í innflutningi á rafbílum, öflugri markaðssetningu rafbíla og umfangsmikilli þjálfun starfsmanna í sölu og þjónustu rafbíla.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra bindur vonir við samkomulag við atvinnulífið um átak í orkuskiptum fyrirtækja. Brimborg býður sérsniðnar orkuskiptalausnir, til kaups eða leigu ásamt ráðgjöf við uppsetningu hleðsluinnviða handa fyrirtækjum sem vilja vera leiðtogar í orkuskiptum á Íslandi.

Skoðaðu orkuskiptalausnir frá Brimborg til kaups eða leigu og ráðgjöf við innleiðingu hleðslulausna.

Smelltu og hafðu samband


Vefspjall