Fara í efni

BRIMBORG STÆRST Í RAFBÍLUM, SÖLUAUKNING 190%

BRIMBORG STÆRST Í RAFBÍLUM, SÖLUAUKNING 190%
Brimborg stærst í rafbílum!

Nýskráningar Brimborgar á nýjum rafbílum á árinu eru 838 rafbílar sem nemur 23,1% af rafbílasölu á Íslandi og er Brimborg stærst í rafbílasölu á árinu með 190% söluaukningu.

Ísland hefur skrifað undir alþjóðlegar skuldbindingar um að draga úr kolefnislosun á hverju ári til ársins 2030 og ef markmiðin nást ekki þýðir það umtalsverð fjárútlát fyrir íslenska ríkiskassann. Brimborg leggur áherslu á að vera leiðtogi í orkuskiptum og bjóða heimilum og fyrirtækjum orkuskiptalausnir í samgöngum. Ísland er í einstakri stöðu með aðgang að íslenskri, endurnýjanlegri, orku, fyrir bíla.

Í samræmi við markmið í Umhverfisstefnu Brimborgar,  Visthæf skref, sem innleidd var árið 2007 þá hefur Brimborg lagt mikla áherslu á að hraða orkuskiptum á bílamarkaði með forgangi í innflutningi á rafbílum, öflugri markaðssetningu rafbíla og umfangsmikilli þjálfun starfsmanna í sölu og þjónustu rafbíla. Það hefur skilað sér í góðu forskoti Brimborgar á rafbílamarkaði. 46,4% af bílasölu Brimborgar á árinu eru hreinir rafbílar.

Heildarfjöldi nýskráninga hjá Brimborg af öllum orkugjöfum á árinu eru 1807 bílar sem er 28,2% aukning frá fyrra ári. Sé einungis horft til nýskráningar rafbíla er Brimborg með 838 rafbíla í ár sem er 190% aukning frá fyrra ári. Það er umtalsvert meiri vöxtur en á heildarmarkaði þar sem heildarmarkaður rafbíla hefur stækkað um 64,3% milli ára. 

Brimborg er eitt stærsta bílaumboð landsins og býður mikið úrval rafmagnaðra fólksbíla, jeppa og sendibíla frá sjö bílaframleiðendum, Volvo, Polestar, Ford, Mazda, Citroën, Opel og Peugeot auk þess sem Brimborg býður einnig rafknúna þungaflutningabíla allt að 44 tonn í heildarþyngd, rafknúnar vinnuvélar allt að 5 tonn í heildarþyngd og rafknúna  hópferðabíla fyrir allt að 50 farþega. 

Skoðaðu orkuskiptalausnir frá Brimborg til kaups eða leigu og ráðgjöf við innleiðingu hleðslulausna.

Í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg er hægt að skoða alla rafbíla sem Brimborg er með á lager eða sem eru í pöntun.

Vefsýningarsalur nýrra bíla

Rafbílar hjá Brimborg

DÆMI UM 100% RAFBÍLA HJÁ BRIMBORG

MAZDA MX-30 100% RAFBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

POLESTAR 2 100% RAFBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

OPEL CORSA-E 100% RAFBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

OPEL MOKKA-E 100% RAFBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

PEUGEOT E-208 100% RAFBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

VOLVO XC40 RECHARGE 100% RAFBÍLL

VOLVO XC40

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

VOLVO C40 RECHARGE 100% RAFBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

PEUGEOT E-2008 100% RAFBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

FORD MUSTANG MACH-E 100% RAFBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

CITROËN Ë-BERLINGO 100% RAFBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

PEUGEOT E-RIFTER 100% RAFBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

CITROËN Ë-C4 100% RAFBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

 

DÆMI UM 100% RAFKNÚNA SENDIBÍLA

FORD E-TRANSIT 100% RAFSENDIBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

CITROËN Ë-JUMPY 100% RAFSENDIBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

OPEL VIVARO-E 100% RAFSENDIBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

OPEL COMBO-E 100% RAFSENDIBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

PEUGEOT E-PARTNER 100% RAFSENDIBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

PEUGEOT E-EXPERT 100% RAFSENDIBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

CITROËN Ë-BERLINGO 100% RAFSENDIBÍLL

SMELLTU TIL AÐ SJÁ MEIRA

 

 


Vefspjall