Fara í efni

Uppfært: Starfsemi í eðlilegt horf eftir netárás, rannsókn sérfræðinga í gangi

Uppfært: Starfsemi í eðlilegt horf eftir netárás, rannsókn sérfræðinga í gangi
Starfsemi í eðlilegt horf. Rannsókn í fullum gangi.

Í kjölfar netárásar á tölvukerfi Brimborgar skv. tilkynningu frá Brimborg 29.8.2023  þar sem hluti gagna var læstur hefur Brimborg gripið til ýmissa ráðstafanna til að loka á aðgang árásaraaðila til dæmis með lokun á aðgöngum, endurræsingu lykilorða og fleira ásamt því að vinna að rannsókn á umfangi öryggisbrestsins og leitast við að upplýsa hvort og þá hvaða upplýsingar hafi farið út úr fyrirtækinu. Ekki hafa fundist vísbendingar á þessu stigi um að gögn hafi farið úr húsi.

Eftir að öryggi kerfa var tryggt var umsvifalaust hafist handa við að byggja upp kerfin að nýju, koma gögnum af afritum á sinn stað og vinna að auknum netvörnum til skamms- og lengri tíma. Meginkerfi Brimborgar voru opnuð tveimur dögum eftir netárásina og í dag eru nánast öll kerfi virk og starfsemi í megindráttum komin í eðlilegt horf.

Brimborg fékk sérfræðinga á sviði tölvuöryggismála til að rannsaka netárásina og stendur rannsókn ennþá yfir en á þessu stigi hafa ekki fundist vísbendingar um að gögn hafi í raun farið út úr fyrirtækinu og því ekki vísbendingar um að um viðkvæmar persónuupplýsingar sé að ræða í skilningi 3. mgr. 3. gr. laga um persónuvernd.

Persónuvernd og CERT-IS, netöryggissveits íslands, var tilkynnt um atvikið samdægurs.

Í persónuverndarstefnu Brimborgar er greint frá því hvernig félagið stendur að söfnun, skráningu, vinnslu, vistun og miðlun persónugreinanlegra upplýsinga um viðskiptamenn sína og einstaklinga sem eiga í samskiptum við fyrirtækið á einn eða annan hátt t.d. með heimsókn á starfsstöðvar, með öðrum samskiptaleiðum eða með því að heimsækja vefsvæði félagsins og talin eru upp hér að neðan, hvort sem persónuupplýsingarnar eru geymdar rafrænt, á pappír eða með öðrum hætti. Persónuverndarstefnuna má finna hér

Brimborg harmar að netárásin hafi átt sér stað en ítrekar að unnið sé hörðum höndum að rannsókn málsins og verða upplýsingar birtar hér á fréttavef Brimborgar eftir því sem framvindur.

Nánari upplýsingar um öryggisbrestinn veitir persónuverndarfulltrúi Brimborgar skv. upplýsingum í persónuverndarstefnu félagsins.


Vefspjall