Flandur, Bílorka, MAX1 og Brimborg á Iðnaðarsýningunni 2025 dagana 9.-11. október. Sjáumst!
Flandur, Bílorka, MAX1 og Brimborg verða á Iðnaðarsýningunni 2025 í Laugardalshöll 9.–11. október á bás B-21. Sýningin er helsti vettvangur fyrirtækja og einstaklinga til að kynna lausnir á sviði mannvirkja, orku, innviða, hönnunar og vistvænna lausna. Á básnum mun Bílorka bjóða margvísleg tilboð og kynna og sýna rafhleðslustöðvar fyrir heimili, sumarhús og fyrirtæki og kynna hraðhleðslunet Bílorku. Flandur mun kynna nýja sendibílaleigu, þar sem sýningargestir geta skráð sig í lukkupott, þar sem hægt er að leigja, sækja og skila sendibíl allan sólarhringinn, 100% rafbílar og rafmagn innifalið í leigunni og Brimborg mun kynna rafsendibíla til kaups eða langtímaleigu og Nokian rafbíladekk frá MAX1. Við verðum einnig með Dieci 26.6-e rafknúinn skotbómulyftara til sýnis.
Sýningin er opin:
- Fimmtudaginn 9. október frá kl. 14-19
- Föstudaginn 10. október frá kl. 10-18
- Laugardaginn 11. október frá kl. 10-17
Bílorka – Hleðslustöðvar fyrir heimili, sumarhús og fyrirtæki ásamt öflugu hraðhleðsluneti
Bílorka sér um sölu og uppsetningu hleðslustöðva fyrir heimili, einbýli og fjölbýli, sumarhús og fyrirtæki auk þess að vera með öflugt net hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla á Íslandi. Hjá Bílorku færðu heimahleðslustöðvar, hleðslukapla og ferðahleðslutæki og getur pantað uppsetningu á hleðslustöðinni á föstu verði við kaupin. Fyrir fyrirtæki býður Bílorka ráðgjöf, frumúttekt og möguleika á rekstrarleigu hleðslustöðva til að mæta þörfum fyrirtækjaflota. Hraðhleðslunet Bílorku er víða um landið og appið eONE (e1) gerir notendum kleift að greiða og nota stöðvarnar með einföldum hætti. Sýningartilboð verða í boði á sýningunni.
Það er ekkert klandur þegar þú notar Flandur
Flandur er þjónusta sem býður fyrirtækjum og einstaklingum upp á leigu á 100% rafmagnssendibílum í gegnum Flandur appið, allan sólarhringinn og allt árið um kring. Notendur geta sótt og skilað bílum þegar þeim hentar, og rafmagnið er innifalið í verði leigunnar. Þjónustan leggur áherslu á einfaldleika, sjálfbærni og sveigjanleika, þar sem Flandur appið sér um bæði greiðslur og yfirlit yfir leigur. Með þessu gerir Flandur fyrirtækjum og einstaklingum kleift að nálgast vistvæna bíla á þægilegan og hagkvæman hátt, án þess að vera bundið af hefðbundnum afgreiðslutímum því það er ekkert klandur þegar þú notar Flandur. Skráðu þig á Flandur appið á sýningunni og þú ferð í lukkupottinn.
Brimborg með úrval rafbíla til kaups eða langtímaleigu
Brimborg er eitt stærsta bílaumboð landsins með úrval nýrra og notaðra rafmagns fólks- og sendibíla til kaups eða leigu frá sjö heimsþekktum bílaframleiðendum. Brimborg mun kynna rafsendibíla á sýningunni og Nokian rafbíladekkin frá MAX1.
Smelltu og kynntu þér nýja rafbíla hjá Brimborg
Smelltu og kynntu þér notaða rafbíla hjá Brimborg
Nokian gæðadekk frá MAX1
Dieci skotbómulyftarar
Dieci liðstýrðir skotbómulyftarar eru gríðarlega öflugir og hannaðir fyrir mikla notkun. Sýn úr ökumannshúsi er framúrskarandi og mikil áhersla lögð á öryggi tækjanna.
Dieci býður breiða línu tækja, yfir 75 gerðir með lyftigetu allt að 23.000 kg og lyftihæð allt að 30 metrar ásamt því að bjóða uppá 100% rafmagns skotbómulyftara, Dieci Mini Agri 26-e og 20.4-e.
Aukabúnaður er í miklu úrvali á lyftarana svo sem mannkörfur, kranaspil, kranabómur, sópar, margar gerðir af skóflum og svo framvegis.
Við hlökkum til að taka á móti gestum á bás B-21 og kynna þessa spennandi tækni og lausnir.