Fara í efni

Sendibílar til leigu

Sendibílar til leigu

Sendibílaleiga hjá Brimborg er frábær lausn fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki sem þurfa að flytja búslóð, smærri hluti í sumarbústaðinn eða hafa sendibíl til afnota í styttri eða lengri tíma t.d. í reksturinn. Hægt er að fá sendibíl leigðan í ýmsum stærðum, með skömmum fyrirvara, alla daga, allan sólarhringinn í Flandur appinu og á hagstæðu verði.

Ítarlegar upplýsingar er að finna á vefnum Sendibílar til leigu.

Leigutími

Boðið er upp á sendibíla frá 1 klst. leigu, 4 klst., 8 klst., sólarhring, viku, mánuð eða lengur – allt eftir þörfum hvers og eins. Smelltu á hnappinn hér að neðan til að bóka sendibíl og fá nánari upplýsingar um gerðir og verð.

Að leigja sendibíl

Bókunarferlið hjá sendibílaleigu Brimborgar er einfalt og rafrænt með Flandur appinu.

  1. Veldu dagsetningar sem þú þarft á bílnum að halda.
  2. Veldu hvar þú vilt sækja og skila bílnum á einhverjum af útleigustöðum sendibílaleigunnar.
  3. Finndu sendibíl sem hentar þínum þörfum.
  4. Fylltu út allar nauðsynlegar upplýsingar og greiddu í Flandur appinu.

Sendibílar til leigu

Framlenging á leigu

Mjög mikilvægt er að skila sendibílnum á umsömdum tíma og á sama stað og hann var sóttur. Ef upp koma aðstæður sem valda seinkun þá er hægt að framlengja leigu ef bíllinn er laus. Framlenging er gegn gjaldi sem kemur fram í appinu.