Fara í efni

Volvo XC90 AWD margverðlaunaður lúxusjeppi

Volvo XC90 AWD hefur verið hlaðinn lofi frá því hann kom fyrst á markað sem endurspeglast í meira en 65 alþjóðlegum verðlaunum.

Volvo XC90 AWD er margverðlaunaður lúxusjeppi.

Volvo XC90 AWD hefur verið hlaðinn lofi frá því hann kom fyrst á markað sem endurspeglast í meira en 65 alþjóðlegum verðlaunum. Hann var kynntur sumarið 2015 á Íslandi og valinn Bíll ársins á Íslandi 2016 og skömmu síðar Jeppi ársins í Bandaríkjunum.  Honum hefur hlotnast fjöldi annarra verðlauna m.a. öruggasti bíllinn og öruggasti stóri jeppinn af EURO NCAP og hlaut Top Safety Pick af Bandarísku umferðaröryggisstofnuninni (IIHS).

Volvo XC90 AWD er skandínavískur lúxus beint frá Gautaborg hlaðinn búnaði og þægindum.

Staðalbúnaður er sérlega mikill og má þar nefna: Árekstrarvörn sem skynjar einnig gangandi og hjólandi vegfarendur, veglínuskynjari, Webasto vélarhitari með tímastilli, Volvo on Call App þar sem þú getur haft samskipti við bílinn í  gegnum  gsm símann, regnskynjari í framrúðu, hraðastillir o.m.fl.


XC90 AWD dísil verð frá: 8.990.000 kr.
XC90 AWD T8 tengitvinn verð frá: 10.190.000 kr.

Á Volvo vefnum getur þú sett saman Volvo eins og hentar þér best.  Settu saman þinn XC90 hér.


Vefspjall