Fara í efni

Volvo XC40 í nýjum sýningarsal Volvo

Volvo XC40 í nýjum sýningarsal Volvo
Nýr XC40 frumsýndur í nýjum Volvo sal

Frumsýnum Volvo XC40 í nýjum glæsilegum Volvo sýningarsal að Bíldshöfða 6.

Það eru spennandi tímar hér hjá Volvo.  Það er komið að því að frumsýna Volvo XC40 og það í nýjum og glæsilegum sýningarsal Volvo.  Nýi sýningarsalurinn er gerður samkvæmt ýtrustu kröfum Volvo enda á sama Volvo upplifun að vera um allan heim.

Framúrstefnuleg hönnunin og nýstárleg tæknin gera XC40 jeppann alveg einstakan.  Hann er einstaklega skemmtilega hannaður þar sem hvert rými er úthugsað.  Hann hefur einfaldlega allt sem þú þarft og engu ofaukið.

Sérstakt First Edition tilboð er í gangi á fyrstu XC40 bílunum og því til mikils að vinna að koma, sjá, reynsluaka og upplifa Volvo á laugardaginn 28. apríl.

Volvo XC40 hefur unnið til margra verðlauna en meðal annarra var Volvo XC40 valinn "Bíll ársins í Evrópu 2018" á bílasýningunni í Genf.  Þetta er í fyrsta sinn sem Volvo hlýtur þessi eftirsóttu verðlaun. Einnig vann Volvo XC40 "Bíll ársins" af WhatCar?  

Þessi verðlaun undirstrika hversu glæsilegur og frábær bíll XC40 er. Sjón er sögu ríkari!

Kynntu þér Volvo XC40

Kaffitár og Brauð&Co verða á staðnum til að fullkomna daginn. Komdu á frumsýningu!

 


Vefspjall