Fara í efni

Rafbíll frá Brimborg í heimsmeistarakeppninni í e-Rallý

Rafbíll frá Brimborg í heimsmeistarakeppninni í e-Rallý
Rafbíll frá Brimborg í heimsmeistarakeppni
Jóhann Egilsson, ökumaður og Pétur Wilhelm Jóhannsson, aðstoðarökumaður, keppa á rafbílnum Peugeot e-208 frá Brimborg í hinu alþjóðlega FIA eRally Iceland 2020.

Jóhann Egilsson, ökumaður og Pétur Wilhelm Jóhannsson, aðstoðarökumaður, keppa á rafbílnum Peugeot e-208 frá Brimborg í hinu alþjóðlega FIA eRally Iceland 2020 sem er hluti af mótaröð alþjóðaaksturssambandsins FIA sem það hleypti af stokkunum undir heitinu: FIA Electric and New Energy Championship. Keppnin á Íslandi gefur stig til heimsmeistaratitils og Íslandsmeistaratitils og kallast íslenska keppnin eRally Iceland 2020. Fjögur erlend lið eru skráð til keppni og þrjú íslensk. Ökumaður rafbíls Brimborgar Jóhann Egillsson, er meðlimur í Kvartmíluklúbbnum en hann keppir einnig á Citroën C1 í Formúla 1000 á kappakstursbraut klúbbsins í Hafnarfirði og er eftir tvær keppnir af þremur í sumar í efsta sæti í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.

Markmið eRally er að kynna nýjustu tækni ökutækja sem ætlað er að spara orku og gefa frá sér minnsta mögulegt magn mengunar og koltvísýrings. Því er einnig ætlað að hvetja alla ökumenn til að breyta akstri með áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni bílaumferðar með því að nota rafmagn sem drifkraft ökutækja. Heimsmeistaramótið í e-rallý (E-Rally Regularity Cup) er að öllu leyti helgað rafknúnum ökutækjum. Ekki má gera neinar breytingar á bílunum og verða keppendur að geta notað ökutæki sín til daglegrar notkunar. Markmið keppninnar er að keyra akstursleið á ákveðnum tíma og ákveðnum meðalhraða. Til viðbótar þarf ökumaður að huga að rafmagnseyðslunni og halda henni í lágmarki. Refstig eru gefin ef keyrt er of hratt eða of hægt, of stutt eða of langt og einnig eru gefin refsistig ef eyðsla í keppninni er umfram uppgefna raforkunotun bílsins skv. WLTP staðli. Heimsmeistaramótið í e-rallý á Íslandi stendur yfir í 3 daga og hefst 20. ágúst og keyrðir verða 5 leggir með 21 sérleið. Heildarfjöldi kílómetra verða 703,68 og heildaraksturstími verður 14 tímar og 32 mínútur.

Keppnisbíllinn er Peugeot e-208 100% hreinn rafbíll

Peugeot e-208 er 100% hreinn rafbíll og er nákvæmlega eins og þeir bílar sem Brimborg býður til sölu í sýningarsal Peugeot á Íslandi. Hann er sjálfskiptur með 136 hestafla, hljóðlátri rafmagnsvél og 260 Nm togkrafti og uppgefin hröðun frá 0-100 km. hraða á klst er 8,1 sekúnda. Hann er búinn 50 kWh drifrafhlöðu og er drægni bílsins skv. WLTP mælingu 340 km. Hægt er að hlaða drifrafhlöðu bílsins bæði heima, í vinnu eða á hraðhleðslustöð og tekur aðeins 30 mínútur að hlaða tóma rafhlöðuna í 80% drægni. Allir rafbílar Peugeot eru með fjarstýrðum forhitara sem tryggir að bíllinn er alltaf heitur og einnig er varmadæla staðalbúnaður í öllum Peugeot rafbílum. Varmadæla er mikilvægur búnaður í rafbílum, sérstaklega á Íslandi, því hún nýtist best í hitastigi sem er frá -5 til +15 gráður. Varmadælan endurnýtir orku úr umhverfinu fyrir miðstöð og drifrafhlöðu bílsins sem gerir því kleift að ekki þarf að nota eins mikla orku frá drifrafhlöðunni til að hita eða kæla bílinn. Það getur munað allt að 50 km eða um 15% af drægni bílsins hvort varmadæla er í bílnum eða ekki. Rafbílar án varmadælu þurfa annars að nota hluta af orku rafhlöðunnar fyrir miðstöðina.

Allar nánari upplýsingar um Peugeot e-208 má finna á vef Peugeot á Íslandi hér.

Allar nánari upplýsingar um eRally Iceland 2020 má finna á vef e-rallý hér.

e-rallý


Vefspjall