Fara í efni

Rafbílar taka yfir hjá Opel á Íslandi, 45,5% söluaukning Opel

Rafbílar taka yfir hjá Opel á Íslandi, 45,5% söluaukning Opel
Rafbílar taka yfir hjá Opel á Íslandi

Sala Opel fólksbíla á Íslandi það sem af er ári 2022 er 45,5% meiri en á sama tíma í fyrra og Opel tekur orkuskiptin alvarlega því allar nýskráningar Opel fólksbíla á árinu eru rafbílar. Opel Corsa-e rafbíllinn hefur verið vel tekið á Íslandi og er hann til á lager og til afhendingar strax. Í júní er von á fyrstu sendingu Opel Mokka-e rafbílsins, stóra bróður Corsa-e, sem margir bíða spenntir eftir

Opel er þýskt hágæða bílamerki og leggur þýski bílaframleiðandinn Opel einbeitta áherslu á þróun rafmagnaðra bíla með djarfri, stílhreinni, samtímahönnun. Með rafmögnuðum áherslum stefnir Opel bílamerkið að því að vera í fararbroddi í orkuskiptum á Íslandi og hefur framleiðandinn markað þá stefnu að allar gerðir Opel bíla verði fáanlegar í rafmagnaðri útfærslu árið 2024.

Smelltu til að skoða Opel á Íslandi

Smelltu til að skoða nýja Opel í Vefsýningarsalnum

Nýir og notaðir Opel bílar í Reykjavík og á Akureyri

Brimborg hefur nú opnað nýjan sýningarsal fyrir Opel bíla á Bíldshöfða 8 í Reykjavík og á Tryggvabraut 5 á Akureyri og einnig er hægt að gera hagstæð kaup á nýjum Opel bílum í Vefsýningarsal Brimborgar á netinu eða leigja í langtímaleigu. Nýr vefur Opel á Íslandi er, www.opelisland.is, Vefsýningarsalur er aðgengilegur beint af nýja Opel vefnum og verðlista yfir Opel vörulínuna má finna á Opel vefnum.

Brimborg tekur notaða Opel bíla upp í nýja og hefur einnig úrval notaðra Opel bíla til sölu sem skoða má í Vefsýningarsal notaðra bíla hjá Brimborg.

Smelltu til að skoða notaða Opel í Vefsýningarsalnum

Öflugri áhersla á sölu, varahluti, þjónustu og ábyrgðarmál

Brimborg býður Opel rafbíla með meiri staðalbúnaði, á hagstæðara verði og hefur eflt varahluta- og viðgerðarþjónustu og býður lengri, 7 ára víðtæka verksmiðjuábyrgð á Opel auk þess sem drifrafhlöður Opel rafbíla eru með 8 ára verksmiðjuábyrgð.

Ríkulegt úrval Opel sendibíla í 100% rafmagnsútfærslu

Opel býður upp á ríkulegt úrval sendibíla í 100% rafmagnsútfærslu með allt að 330 km drægni. Opel sendibílarnir eru fáanlegir í mörgum stærðum, útfærslum og með mismunandi eiginleika sem henta við öll dagleg störf. Næsta sending rafsendibíla frá Opel er væntanleg til landsins í júní 2022 og eru þeir einnig boðnir með 7 ára verksmiðjuábyrgð á bíl og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.

Smelltu og kynntu þér Opel sendibíla

Brimborg býður strax víðtækari þjónustu við Opel

Nú þegar Brimborg hefur tekið yfir sölu nýrra Opel bíla, varahluta-, viðgerðar- og ábyrgðarþjónustu býður Brimborg Opel kaupendum fólks- og atvinnubíla víðtækari þjónustu sem felst m.a. í:

  • 7 ára verksmiðjuábyrgð á bíl eða að 140 þús. km
  • 8 ára verksmiðjuábyrgð á drifrafhlöðu eða að 160 þús. km
  • Ókeypis lánsbíl við ábyrgðarviðgerð
  • Vegaaðstoð um land allt
  • Uppítöku á öllum gerðum notaðra bíla
  • Langtímaleigu á nýjum Opel bílum
  • Brimborg tekur nú þegar á móti Opel bílum í þjónustu og ábyrgðarviðgerðir

Brimborg stækkar þjónustunet Opel

Brimborg er þegar byrjað að taka við Opel bílum í þjónustu- og ábyrgðarviðgerðir og varahlutir í Opel eru þegar fáanlegir í Brimborg. Brimborg þjónustar Opel bíla á Opel verkstæðinu við Bíldshöfða 8 og hjá Vélalandi í Jafnaseli 6 í Breiðholti og hjá Vélalandi í Dalshrauni 5 í Hafnarfirði. Tímapantanir á verkstæðum eru einfaldar í gegnum bókunarkerfi á vefnum opelisland.is

Brimborg tekur vel á móti öllum gömlum sem nýjum Opel viðskiptavinum og nánari upplýsingar um nýja Opel bíla og þjónustu má finna á nýja Opel vefnum, www.opelisland.is, á netspjalli Brimborgar hér hægra megin niðri eða í síma 5157000.

Smelltu til að skoða Opel á Íslandi

Smelltu til að skoða Opel í Vefsýningarsalnum


Vefspjall