Fara í efni

Rafbílar 70% af sölu Brimborgar

Rafbílar 70% af sölu Brimborgar
Rafbílar 70% af sölu Brimborgar

Rafbílar voru 70% af öllum nýskráningum Brimborgar í júlí en Brimborg nýskráði 120 rafbíla í mánuðinum og var stærst innflytjenda á rafbílum. Brimborg jók sölu rafbíla í júlí miðað við júlí í fyrra um 48,1% og var hlutdeild Brimborgar af rafbílamarkaði 25,8%.

Hlutdeild rafbíla jókst í öllum vörumerkjum Brimborgar frá júlí í fyrra.

Rafbílamarkaður fyrir fólks- og sendibíla í heild var 465 bílar og jókst um 41,8% frá 328 bílum í fyrra. Heildarnýskráningar nýrra fólks- og sendibíla með öllum orkugjöfum voru 1.414 og dróst bílamarkaðurinn saman í júlí um 16,8% miðað við júlí í fyrra. Af heildarmarkaði voru rafbílar 32,9%.


Vefspjall