Fara í efni

Polestar uppfærslan á sérstöku tilboði

Polestar uppfærslan á sérstöku tilboði
Polestar - fimm gerðir finstillinga
Polestar uppfærslan í Volvo bifreiðar er nú á sérstöku tilboði. Um er að ræða fimm gerðir fínstillinga í öflugum pakka sem skila þér aukinni akstursupplifun.

Polestar uppfærslan í Volvo bifreiðar er nú á sérstöku tilboði. Um er að ræða fimm gerðir fínstillinga í öflugum pakka sem skila þér aukinni akstursupplifun. 

Eftirfarandi afkastasvið skila þér betri, jafnari og kraftmeiri akstursupplifnun:

Inngjafarviðbrag𠖠meiri snerpa við framúrakstur
Inngjafarviðbragðið er endurkvarðað til að skila enn betri svörun og viðbragði frá eldsneytisgjöfinni.
Þetta er sérlega hentugt þegar tekið er fram úr eða við krefjandi akstur á hlykkjóttum vegum.

Aukið viðbragð við minni inngjöf – meiri fyrirsjáanleiki og betri stýring
Bæði vélin og gírkassinn fá kvörðun sem skilar hraðara viðbragði þegar ökumaðurinn sleppir inngjöfinni skyndilega, en þetta skilar meiri fyrirsjáanleika og betri stýringu.

Gírskiptihraði – hraðari gírskiptingar og meiri hröðun
Gírskiptihraðinn er aukinn sem skilar bílnum meiri hröðun og snarpari svörun við aðgerðum ökumannsins.

Nákvæmni gírskiptingar og gírfestueiginleiki – meiri nákvæmni og snjallari gírskiptingar
Gírskiptingarnar eru fínstilltar og skila þá nákvæmari akstursupplifun með snarpari hröðun. Gírskiptipunktar eru kvarðaðir þannig að þeir nýti sér miðjusvið í afkastagetu vélarinnar en gírfestueiginleikinn heldur bílnum í sama gír þegar teknar eru beygjur með miklum þyngdarkrafti til hliðanna.

Afkastamikil vél – meira afl þegar aðstæður krefjast þess
Allar fínstillingar á Drive-E-vélum miða að því að auka afkastagetuna í miðju aflsviði vélarinnar, en þetta er sérlega hentugt fyrir hinn sportlega ökumann þegar hann tekur fram úr eða tekur krappar beygjur.

POLESTAR uppfærslan + ísetning á sérstöku tilboði
Áður: 159.900 kr.
Nú: 119.900 kr.
Tilboðið gildir til áramóta.
Hafðu samband í dag og fáðu nánari upplýsingar
volvomottaka@brimborg.is
Sími: 515 7000.

 


Vefspjall