Fara í efni

Peugeot fær frábærar viðtökur hjá Brimborg

Peugeot fær frábærar viðtökur hjá Brimborg
Viðtökur Peugeot hjá Brimborg hafa verið frábærar
Frá því Brimborg tók við umboði fyrir Peugeot bíla í byrjun árs 2016 hafa verið nýskráðir 657 Peugeot bílar og nýliðinn júlímánuður var metmánuður hjá Peugeot á Íslandi þegar 57 nýir Peugeot bílar hittu nýja eigendur sína.

Frá því Brimborg tók við umboði fyrir Peugeot bíla í byrjun árs 2016 hafa verið nýskráðir 657 Peugeot bílar og nýliðinn júlímánuður var metmánuður hjá Peugeot á Íslandi þegar 57 nýir Peugeot bílar hittu nýja eigendur sína. Bílaframleiðandinn PSA Group, eigandi Peugeot og Citroën bílamerkjanna, var í endurskipulagningarferli og miðuðu breytingar við að setja undir einn hatt innflutning vörumerkjanna tveggja í hverju landi fyrir sig, víðsvegar um heiminn með það að markmiði að auka hagkvæmni og bæta þjónustu viðskiptavina og auka hlutdeild bílamerkjanna.

Nýr sýningarsalur og notendavæn heimasíða

Nýr sýningarsalur Peugeot var opnaður föstudaginn 22. júlí árið 2016 í Brimborg að Bíldshöfða 8 í Reykjavík og hófst þá sala Peugeot bíla fyrir alvöru hjá Brimborg. Strax frá upphafi var öll bílalína Peugeot í boði með meiri búnaði en áður og á einstaklega hagstæðu verði. Samhliða opnun nýs sýningarrýmis Peugeot var sett í loftið ný heimasíða Peugeot á Íslandi þar sem áhersla var lögð á að skapa notendavæna vefsíðu sem sýndi á skýran hátt flott úrval Peugeot bíla hjá Brimborg.

Lægra varahlutaverð og öflug verkstæðisþjónusta

Samhliða sölu Peugeot bíla hóf Brimborg innflutning á varahlutum í Peugeot bíla og náði strax að lækka varahlutaverð með hagstæðum innkaupum beint frá framleiðanda. Verkstæðisþjónusta og ábyrgðaviðgerðir fyrir alla Peugeot bíla er einnig í boði hjá Brimborg og státar Peugeot verkstæði Brimborgar af fjölda fagmenntaðra bifvélavirkja með áratugareynslu af bílaviðgerðum.

Sölustaðir

Sölustaðir Peugeot á Íslandi hjá Brimborg eru tveir, Bíldshöfði 8 í Reykjavík og Tryggvabraut 5 Akureyri. Komdu og prófaðu Peugeot! Gæðin heilla þig strax!

Áhugaverðar slóðir

Peugeot á Íslandi á Facebook 

Peugeot á Íslandi á Instagram 

 


Vefspjall