Fara í efni

PEUGEOT 5008 tilnefndur sem "BEST LARGE SUV"

PEUGEOT 5008 tilnefndur sem
Peugeot 5008 tilnefndur sem "BEST LARGE SUV"
Peugeot 5008 hefur verið tilnefndur sem "BEST LARGE SUV" af What Car?

Peugeot 5008 SUV 1.2 PureTech 130 Allure hefur verið tilnefndur sem "BEST LARGE SUV“ á árinu 2019 af What Car. Þetta er annað árið í röð sem Peugeot 5008 SUV er tilnefndur í þessum flokki og hlaut þessi verðlaun árið 2018.  7 sæta Peugeot 5008 SUV fær harða samkeppni en nær að vekja hrifningu dómara með einstakri akstursupplifun og samkeppnishæfu verði. Niðurstaðan verður kynnt þann 14. janúar næstkomandi og við fylgjumst spennt með.

Kynntu þér Peugeot 5008

Ýttu á spilaðu á myndbandið hér að neðan til að sjá hvað dómarar höfðu að segja:

 

Peugeot 5008 SUV
- Komdu fyrir sjö

Peugeot 5008 SUV er sparneytinn, rúmgóður 7 sæta bíll með fimm ára ábyrgð. Eldneytiseyðsla í blönduðum akstri er aðeins 4,0 til 5,7 l/100 km. Aftursætin í miðjuröð eru þrjú stök sæti öll á sleða með þremur Isofix festingum. Komdu og keyrðu!

Peugeot 5008

FULLKOMINN FJÖLSKYLDUBÍLL

Peugeot 5008 SUV er fullkominn fyrir erilsamt hversdagslíf fjölskyldunnar sem & ævintýraferðir út á land. Við fyrstu keyrslu finnur þú að mikil áhersla hefur verið lögð á að skapa góð akstursþægindi. Svörunin er góð og viðbragðið er næmt. Hann er stöðugur í beygjum. Hann er jafnframt hljóðlátur, líka þegar ekið er á miklum hraða.

Peugeot 5008

FRÁBÆRIR AKSTURSEIGINLEIKAR

Nýr Peugeot 5008 SUV er lipur og ótrúlega þýður í akstri. Vektu skilningarvitin með Peugeot i-Cockpit mælaborðinu sem er margverðlaunað. Peugeot i-Cockpit tæknin er sérlega notendavæn og eykur akstursánægjuna. Nett stýrið er með öllum helstu stjórntökkum fyrir ökumann bílsins. Peugeot 5008 SUV er búinn 6 öryggispúðum ásamt öryggispúðagardínum, sem vernda farþega í öllum sætaröðum.

Peugeot 5008

 Peugeot 5008

RISASTÓRT SKOTT

Peugeot 5008 SUV er 7 sæta, rúmgóður bíll með fjölhæfu og notendavænu farþegarými. Hvort sem þú ert í golfi eða átt stóra fjölskyldu þá eru gæði þess að vera með stórt skott einstök. Farangursrýmið er mjög gott fyrir bíl í þessum flokki, 952 lítrar. Í Peugeot 5008 SUV  eru þrjú stök sæti í miðjusætaröð sem eru öll á sleðum & með Isofix festingum, þú kemur auðveldlega þrem barnabílstólum fyrir í sætaröðinni. Peugeot 5008 SUV var valinn Best large SUV af WHATCAR? árið 2018.

Peugeot 5008

KYNNTU ÞÉR PEUGEOT 5008


Vefspjall