Fara í efni

Peugeot 208 valinn BÍLL ÁRSINS 2020

Peugeot 208 valinn BÍLL ÁRSINS 2020
Peugeot 208 er Bíll ársins 2020!
Peugeot 208 er BÍLL ÁRSINS í Evrópu 2020.

Peugeot 208 er BÍLL ÁRSINS í Evrópu 2020. Í úrslitum voru Tesla Model 3, Porsche Taycan, BMW 1-Series, Ford Puma, Renault Clio og Toyota Corolla. Sigurvegarinn er valinn af dómnefnd 60 bílablaðamanna frá 23 löndum og hafa verðlaunin verið veitt síðan 1964. Ár hvert er mikil spenna um hver hlýtur þessi virtu verðlaun og því geggjaðar fréttir að fá tiltilinn í hús til Brimborgar.

Mikil velgengni Peugeot

Peugeot hefur notið mikillar velgengni í Car of the Year verðlaununum undanfarin ár. Árið 2014 var Peugeot 308 valinn Bíll ársins og Peugeot 3008 hlaut titilinn árið 2017, því til viðbótar hefur Peugeot 3008 hlotið 67 alþjóðleg verðlaun hvorki meira né minna. 

Jean-Philippe, forstjóri Peugeot, segir það vera mikinn heiður að hljóta þessi virtu verðlaun. "Við elskum bíla. Dómnefndin samanstendur af miklum sérfræðingum og því sannur heiður að vinna, þetta kom okkur á óvart og veitti okkur mikla gleði" sagði Jean-Philippe, forstjóri Peugeot.

Peugeot 208 er gríðarlega vel heppnaður

Þessi verðlaun undirstrika hversu gríðarlega vel heppnaður nýr Peugeot 208 er. Peugeot 208 kemur bæði sem 100% hreinn rafbíll með 340 km drægni og í bensíngáfu.

Nýr Peugeot 208 hefur hlotið einróma lof fyrir framsækið og nútímalegt útlit sem er undirstrikað með LED fram- og afturljósum sem setja sterkan svip á bílinn. Innra rýmið er rúmgott og númtímalegt þar sem i-Cockpit innréttingin er í aðalhlutverki. Akstursupplifun er einstök í nýjum Peugeot 208. Hann er sportlegur, hljóðlátur og frábærlega fimur á veginum.

Kynntu þér Peugeot 208

Peugeot 208

Sjáðu myndband um Bíl ársins Peugeot 208:


Peugeot e-208 100% hreinn rafbíll

Peugeot e-208 er 100% hreinn rafbíll með 340 km drægni og engri CO2 losun. Peugeot e-208 rafbíll er sjálfskiptur með 136 hestafla, hljóðlátri rafmagnsvél og 260 Nm togkrafti. Með þessu afli kemst Peugeot e-208  frá 0 upp í 100 á 8,1 sekúndu. Glænýr undirvagn Peugeot e-208 er hannaður með innbyggðri 50 kwh rafhlöðu svo að innra rýmið er jafnstórt og í hefðbundnum Peugeot 208.  Peugeot e-208 rafbíll er með fimm ára ábyrgð og 8 ára ábyrgð á rafhlöðu. Peugeot e-208 100% rafbíll kostar frá 3.790.000 kr.

Kynntu þér Peugeot e-208

 

Peugeot e-208

Peugeot e-208

Peugeot 208 með PureTech bensínvél

Glænýr Peugeot 208  er búinn nýjustu kynslóð sparneytinna PureTech bensínvéla. Sparneytin bensínútfærslan eyðir aðeins frá 4,0l/100 km. og CO2  losun er aðeins frá 95 gr/km. Peugeot 208 fæst bæði beinskiptur og með nýrri 8 þrepa sjálfskiptingu. Verð frá 2.490.000 kr. beinskiptur og frá 3.050.000 kr. sjálfskiptur.

Peugeot 208 er með fimm ára ábyrgð.

Kynntu þér Peugeot 208

Peugeot 208

Við erum við Bíldshöfða 8 í Reykjavík og við Tryggvabraut 5 á Akureyri. Komdu og keyrðu Bíl ársins í Evrópu 2020!
Það er alltaf opið í vefsýningarsal Brimborgar - Smelltu!


Vefspjall