Fara í efni

Nýtt app frá Peugeot

Nýtt app frá Peugeot
MyPeugeot appið er einfalt í notkun
Í MyPeugeot appinu getur þú á einfaldan hátt haft yfirsýn yfir Peugeot bíllinn þinn.

Í MyPeugeot appinu getur þú á einfaldan hátt haft yfirsýn yfir Peugeot bíllinn þinn. Þú sérð upplýsingar um km stöðu, eyðslutölur, upplýsingar um ferðir, viðvörunarljós í mælaborði ásamt því að hafa yfirlit yfir þjónustueftirlit bílsins.

Þú getur á auðveldan máta pantað tíma í þjónustu á þjónustuverkstæði Peugeot eða fengið beint samband við Peugeot á Íslandi. Í appinu getur þú einnig fylgst með nýjungum hjá Peugeot, lesið fréttir og fengið tilboð. 

Kynntu þér MyPeugeot appið

MYPEUGEOT APP FYRIR BENSÍN OG DÍSIL ÚTFÆRSLUR

Þú hefur yfirsýn yfir eftirfarandi upplýsingar:

  • Stöðu kílómetramælis
  • Eyðslutölur og stöðu á eldsneyti
  • Stöðu á þjónustu
  • Rauntímastaðsetningu bílsins á korti
  • Lengd ferðar,  upphafsstað og lokastað ásamt upphafs- og lokatíma
  • Upplýsingar um hvað viðvörunarljós í mælaborði þýða

Þú getur einnig stjórnað þessum aðgerðum beint í gegnum appið:

  • Pantað tíma á þjónustuverkstæði Peugeot á Íslandi | Brimborg
  • Haft samband við neyðaraðstoð Peugeot

MYPEUGEOT APP FYRIR RAFMAGNS- OG TENGILTVINNBÍLA 

Vertu með yfirsýn með MyPeugeot® appinu. Í MyPeugeot appinu er hægt að skoða eftirfarandi atriði þegar þér hentar:

  • Stöðu á drægni
  • Hleðslustöðu
  • Fengið upplýsingar um hvað viðvörunarljós í mælaborði þýða

MyPeugeot app fyrir rafmagns- og tengiltvinnbíla er með fjarstýrða virkni (e-remote) þar sem þú getur:

  • Virkjað, stöðvað eða tímasett hleðslu
  • Still forhitun á bílnum þannig að hann sé heitur þegar þú leggur af stað. Forhitun hefur ekki áhrif á hleðslutíma 

KYNNTU ÞÉR MYPEUGEOT APPIÐ

Peugeot 5008 til sölu Peugeot
Peugeot

 


Vefspjall