Fara í efni

Nýr glæsilegur Volvo salur hjá Brimborg

Nýr glæsilegur Volvo salur hjá Brimborg
Nýr glæsilegur Volvo sýningarsalur

Nýr glæsilegur Volvo salur hefur verið opnaður hjá Brimborg. Komdu í heimsókn.

Það var stór stund hjá Brimborg þegar nýr sýningarsalur Volvo hjá Brimborg var opnaður. Framkvæmdir hófust 15. desember og lauk 25. apríl síðastliðinn. Salurinn er hannaður með arkítektum Apparats skv. ströngustu kröfum Volvo.

Gengið er inn um nýjan inngang sem er viðarklæddur og færir hlýleika inn í glæsilegt sýningarrýmið. Í salnum er einstaklega fallegt rými þar sem viðskiptavinir Volvo geta haft það notalegt á meðan þeir bíða eftir aðstoð söluráðgjafa eða verkstæðismóttöku. Öll húsgögn og aðrir munir eru sérvaldir af Volvo inn í salinn og þar nýtur sín sérlega falleg skandinavísk hönnun. Rúður nýja salarins eru þær stærstu á Íslandi og á þeim eru engir póstar. Þær ramma skemmtilega inn bílana sem valdir hafa verið til þess að prýða sýningargluggana í hvert skipti.

Hér má sjá Volvo salinn frá fyrsta degi framkvæmda og til opnunardags.

Smelltu til að skoða fleiri myndir frá opnum salarins.

Myndir af glæsilegum nýjum Volvo sal


Vefspjall