Fara í efni

Nýr sjö sæta Peugeot rafbíll

Nýr sjö sæta Peugeot rafbíll
Peugeot E-5008 rúmgóður, sjö sæta rafbíll í hæsta gæðaflokki á frábæru kynningarverði frá 7.890.000 kr. með rafbílastyrk.

Brimborg kynnir glænýjan Peugeot E-5008 sjö sæta rafbíl með framúrskarandi drægni, miklum hleðsluhraða, nýrri kynslóð af Panoramic i-Cockpit innra rými, ríkulegum búnaði og víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.

Peugeot E-5008 er fáanlegur í tveimur útfærslum: Allure eða GT. Báðar útfærslurnar eru ríkulega búnar með varmadælu og 11 kW innbyggðri hleðslustýringu fyrir heimahleðslu. Sjö sæta Peugeot 5008 hefur reynst vel á Íslandi sem endurspeglast í frábærri endursölu og kemur nú sem 100% rafbíll.

Peugeot E-5008 er kominn til landsins og býðst á frábæru kynningarverði eða frá aðeins 7.890.000 með rafbílastyrk frá Orkusjóði. 

Með sjö sæta Peugeot E-5008 með mikilli drægni og öflugum hleðsluhraða er loksins kominn rafbíll sem getur leyst hlutverk fjölskyldubílsins vel af hendi. Með sífellt þéttara hraðhleðsluneti um allt land er ekkert mál að taka stutt stopp, teygja úr sér og skjóta inn á hann rafmagni á ferðalagi um landið.

Bílorka í samvinnu við Brimborg býður 3 fasa heimahleðslustöðvar (hægt að setja upp sem einfasa líka) með áföstum kapli á mjög hagstæðu verði og býður uppsetningu á föstu verði. Einnig býður Bílorka eigendum rafbíla frá Brimborg hagstæð kjör í öllum 12 hraðhleðslustöðvum félagsins. Nánar um hleðslustöðvar og hraðhleðslunet Bílorku hér.

LANGDRÆGUR RÚMGÓÐUR RAFBÍLL MEÐ ALLT AÐ 502 KM DRÆGNI
Peugeot E-5008 er kraftmikill, 210 hestafla rafbíll með 73 kWh drifrafhlöðu og varmadælu sem endurnýtir orku fyrir miðstöðina og því er drægni bílsins skv. WLTP mælingu framúrskarandi eða allt að 502 km.

Skoðaðu Peugeot E-5008 í Vefsýningarsal

ÖFLUGUR HLEÐSLUHRAÐI
Peugeot E-5008 er með þriggja fasa innbyggða hleðslustýringu fyrir heimahleðslu en bíllinn styður einnig einfasa ef þannig háttar til. Því er auðvelt að hlaða heima eða í vinnu þegar bíllinn er ekki í notkun. Hleðslutíminn er aðeins fjórar klukkustundir og 50 mínútur í þriggja fasa hleðslu (AC) og auðvelt er að skjóta inn á rafhlöðuna í hraðhleðslu (DC) ef þörf er á aukaorku yfir daginn. Í hraðhleðslu er hleðslutíminn einungis 35 mínútur fyrir 20-80% miðað við hámarks hleðsluafköst sem eru 160 kW.

HEILLANDI, FÁGUÐ OG STÓRBROTIN HÖNNUN
Peugeot hefur gjörbylt hönnun á nýjum E-5008 í takt við ný hönnunarmarkmið Peugeot þar sem heillandi, fáguð og stórbrotin hönnun á innra og ytra rými eru höfð að leiðarljósi. Auk stórbrotinnar hönnunar er akstursgleði og einstök afköst höfð að leiðarljósi sem skilar sér í meiri ávinningi fyrir væntanlega eigendur. Peugeot E-5008 er á glænýjum STLA undirvagni sem hefur sérstaklega verið hannaður til að bjóða upp á hágæða akstursupplifun í rúmgott innra rými, framúrskarandi drægni, öflug hraðhleðsluafköst, skilvirkni, stafrænar þjónustur og snjallhleðslumöguleika. Peugeot E-5008 rafbíll er með þráðlausar uppfærslur yfir netið (OTA) fyrir reglulegar uppfærslur á hugbúnaði bílsins svo að bíllinn er alltaf með nýjasta hugbúnaði sem völ er á. Nýr Peugeot E-5008 rafbíll er með ríkulegan öryggisbúnað og má þar helst nefna sjálfvirka neyðarhemlun með myndavél og radar, veglínustýringu, bakkmyndavél, nálægðarskynjurum, fjarlægðarstillanlegum hraðastilli með Stop & Go virkni, akreinaraðstoð og skynjara á hraðatakmörkunum.

E-5008 framendi

RÚMGÓÐUR, SJÖ SÆTA RAFBÍLL Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
Peugeot E-5008 er sérlega rúmgóður sjö sæta rafbíll þar sem innra rýmið er í hæsta gæðaflokki og nóg pláss fyrir ökumann og farþega. Farangursrýmið er einstaklega stórt og með því að fella niður öll aftursætin getur það orðið allt að 1815 lítrar. Innra rýmið er hlýlegt og þægilegt þar sem sætaskipan með þremur sætum í miðjuröð eru öll á sleða og niðurfellanleg til að auðvelda aðgengi að öftustu sætaröðinni. Peugeot E-5008 er með nýjustu kynslóð af i-Cockpit innréttingu.

E-5008 innra rými

innra rými sjö sæti

NÝ KYNSLÓÐ AF PANORAMIC I-COCKPIT INNRA RÝMI
Glænýr Peugeot E-5008 er með stórfenglegri, nýrri kynslóð af Panoramic i-Cockpit innréttingu sem hefur verið sérhönnuð til að veita einstaka akstursupplifun. Innra rýmið er fullkomið þar sem notagildi og þægindi fyrir ökumann er haft að leiðarljósi þar sem öll stjórntæki, mælar og skjáir eru í sjónlínu ökumanns. Ný kynslóð af Panoramic i-Cockpit inniheldur fullkomin víðmyndarskjá sem er ýmist tveir 10“ HD margmiðlunarskjáir í Allure útfærslu eða 21“ HD margmiðlunar- og víðmyndarskjár með LED stemmningslýsingu í GT útfærslu. Í skjánum eru allar helstu stafrænu nýjungar, þráðlausar tengingar fyrir snjallsíma og raddstýring. Fyrirferðalítið leðurklætt stýrið hefur alltaf leikið lykilhlutverk í i-Cockpit innréttingunni og hefur enn á ný verið endurhannað til að bjóða upp á enn betri akstursupplifun og þægindi.

i-Cockpit

SNJALLMIÐSTÖÐ MEÐ FORHITUN TRYGGIR ALLTAF HEITAN BÍL
Peugeot E-5008 er með snjallmiðstöð með tímastillingu á forhitun á innra rými sem tryggir ávallt heitan bíl. Hægt er að tímastilla forhitun alla vikudagana fyrirfram, einfalt og þægilegt.

7 ÁRA VÍÐTÆK ÁBYRGÐ Á BÍL OG 8 ÁRA ÁBYRGÐ Á DRIFRAFHLÖÐU
Peugeot og Brimborg eru fullviss um gæði, áreiðanleika og endingu rafbíla sinna. Gæði Peugeot bíla eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðunni. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðanda.

900.000 KR. RAFBÍLASTYRKUR FRÁ ORKUSJÓÐI
Auðvelt er að sækja um rafbílastyrk frá Orkusjóð við kaup á nýjum Peugeot E-5008 rafbíl að upphæð 900.000 kr. sem gildir á árinu 2024. Verð Peugeot E-5008 er mjög hagstætt og því langt undir skilyrði Orkusjóðs um hámarksverð. Hins vegar er rétt að benda á að stjórnvöld hafa sett þak á heildarupphæð sem varið verður til styrkja og því gætu þeir klárast fyrr. Auðvelt er að nota rafbílastyrkinn sem hluta af útborgun bílsins.

PEUGEOT 5008 HYBRID
Í lok árs er einnig von á Peugeot 5008 með hybrid tækni, rafmagn og bensín. Hann er sjálfhlaðanlegur og því þarf ekki að stinga í samband til að hlaða rafhlöðuna heldur hleður hann sig í akstri. Peugeot 5008 hybrid er sparneytinn með allt að 15% minni eyðslu en sambærilegur bensínbíll, ríkulega búinn og með stórfenglegu Panoramic i-Cockpit innra rými sem tryggir hágæða akstursupplifun og öryggi. Peugeot 5008 hybrid er nú fáanlegur í forsölu á frábæru kynningarverði eða frá 7.590.000 kr.

Kynntu þér Peugeot 5008 hybrid hér

Skoðaðu úrval Peugeot 5008 hybrid í Vefsýningarsal

BREIÐASTA RAFBÍLALÍNAN Á ÍSLANDI
Peugeot bílaframleiðandinn hefur sett sér metnaðarfullt markmið að verða leiðandi rafbílamerki í Evrópu með breiðustu rafbílalínuna. Næstum 5 ára reynsla er af Peugeot rafbílum á Íslandi. Í lok árs 2024 mun Peugeot bjóða 9 tegundir rafmagnsfólksbíla sem verður þá breiðasta rafbílalínan á Íslandi með E-208, E-2008, E-308, E-308 Station, E-3008, E-408, E-5008, E-Rifter og E-Traveller. Einnig er í boði úrval rafmagnssendibíla í mörgum stærðarflokkum.

Skoðaðu úrval Peugeot rafbíla í Vefsýningarsal

ÞAÐ HEFUR ALDREI VERIÐ ÖRUGGARA AÐ EIGA RAFBÍL
Brimborg er í hópi stærstu innflytjenda rafbíla á Íslandi undanfarin ár. Með auknu úrvali rafbíla, meiri drægni, auknum hleðsluhraða, ódýrari heimahleðslu, þéttara hraðhleðsluneti, lengri ábyrgð, lægri rekstrarkostnaði, minni mengun, framúrskarandi endursölu og meiri þægindum hefur aldrei verið öruggara að eiga rafbíl.

HÆGT AÐ SKOÐA ÚRVALIÐ AF PEUGEOT E-5008 Í VEFSÝNINGARSAL BRIMBORGAR
Í Vefsýningarsal Brimborgar er að finna Peugeot E-5008 rafbíla sem eru á leiðinni til landsins. Söluráðgjafar Peugeot veita viðskiptavinum ráðgjöf við valið á rétta bílnum, upplýsingar um rafbílastyrki sem eru í boði og aðstoða við val og uppsetningu á hleðslustöð. Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr Vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Peugeot. Einnig stendur til boða að fá Peugeot E-5008 í langtímaleigu þar sem nánast allt er innifalið nema rafmagn og rúðuvökvi.

Skoðaðu Peugeot E-5008 í Vefsýningarsal

SÉRKJÖR Á HLEÐSLULAUSNUM OG Í HRAÐHLEÐSLU
Peugeot á Íslandi og Brimborg í samvinnu við Bílorku bjóða viðskiptavinum sínum sérlega hagstæð kjör á hleðslustöðvum og uppsetningu þeirra ásamt sérkjörum í hraðhleðsluneti Bílorku. Söluráðgjafar Peugeot veita allar upplýsingar um sérkjör til viðskiptavina.

NÁNARI UPPLÝSINGAR UM PEUGEOT E-5008 RAFBÍL
Nánari upplýsingar um Peugeot E-5008 má finna á vef Peugeot á Íslandi eða hjá söluráðgjafa Peugeot í sýningarsal Peugeot við Bíldshöfða 8 í Reykjavík og við Tryggvabraut 5 á Akureyri.

Lestu allt um Peugeot E-5008 rafbíl

E-5008 að aftan


Vefspjall