Fara í efni

NÝIR TÍMAR Í BÍLAKAUPUM. ÍSLENDINGAR KAUPA NÝJA BÍLA BEINT Í VEFSÝNINGARSAL!

NÝIR TÍMAR Í BÍLAKAUPUM. ÍSLENDINGAR KAUPA NÝJA BÍLA BEINT Í VEFSÝNINGARSAL!
Nýir bílar í bílakaupum!
Nýr vefsýningarsalur Brimborgar hefur hlotið fádæma góðar viðtökur og nú eru fráteknir eða seldir vel á þriðja hundrað nýir bílar.

Nýir tímar í bílakaupum. Íslendingar kaupa nýja bíla beint í vefsýningarsal Brimborgar!

Nýr vefsýningarsalur Brimborgar hefur hlotið fádæma góðar viðtökur og nú eru fráteknir eða seldir vel á þriðja hundrað nýir bílar en nýi vefsýningarsalurinn opnaði í nóvember 2019. Í vefsýningarsalnum, sem er opinn allan sólarhringinn alla daga ársins, eru til sýnis og sölu nýir bílar frá Brimborg sem eru á lager eða í pöntun. Um er að ræða nýja bíla frá Ford, Volvo, Mazda, Citroën og Peugeot. Í vefsýningarsalnum eru allar upplýsingar um bílana, hægt er að senda fyrirspurnir, fá tilboð og kaupa í gegnum vefinn.

>> Smelltu til að skoða úrvalið í vefsýningarsal Brimborgar

Forsala á nýjustu bílunum

Brimborg hefur undanfarið forsýnt og hafið forsölu á fjölda nýrra bíla sem eru á leiðinni frá bílaframleiðendum. Með því að kaupa bíl í forsölu á vefnum þá geta viðskiptavinir valið bíla eins og þeim hentar og jafnvel óskað eftir breytingu á lit og búnaði. Upplýsingar um stöðu bílsins og komutíma kemur fram á vefnum og geta viðskiptavinir nýtt tímann á meðan beðið er til að undirbúa sölu á eldri bíl og auðvitað hlakkað til að fá nýja bílinn afhentan. Fjölmargar forsýningar eru nú í gangi í vefsýningarsalnum m.a. á Peugeot e-2008 100% rafmagnsbíl, Ford Explorer PHEV AWD fjórhjóladrifnum tengiltvinnjeppa og Ford Kuga tengitvinnbíl. Fleiri forsýningar eru í farvatninu og má þar nefna nýjan Citroën C5 Aircross PHEV sem kemur til okkar í sumar.

Peugeot e-2008

Ford Kuga

Ford Explorer

Nýir tímar í bílakaupum

Nú eru nýir tímar. Vefverslun Íslendinga hefur aukist gríðarlega undanfarin ár og í raun var bara tímaspursmál hvenær nýir bílar yrðu keyptir á netinu. Nú er sá tíminn kominn og mun þessi kaupleið fyrir nýja bíla hjá Brimborg leiða til umtalsverðs sparnaðar í birgðahaldi sem mun skila sér til bílkaupenda á Íslandi.

>> Smelltu til að skoða úrvalið í vefsýningarsal Brimborgar


Vefspjall