Fara í efni

Metsala Peugeot á Íslandi: Yfir 2000 Peugeot bílar á 5 ára afmælisári hjá Brimborg

Metsala Peugeot á Íslandi: Yfir 2000 Peugeot bílar á 5 ára afmælisári hjá Brimborg
Metsala Peugeot á Íslandi
Peugeot fólks- og sendibílar hafa aldrei notið jafn mikilla vinsælda á Íslandi hvorki fyrr né síðar og markaðshlutdeild aldrei verið hærri. Smelltu og lestu.

Peugeot fólks- og sendibílar hafa aldrei notið jafn mikilla vinsælda á Íslandi hvorki fyrr né síðar og markaðshlutdeild aldrei verið hærri og er það einstaklega ánægjulegt fyrir starfsmenn Brimborgar að upplifa það á 5 ára afmælisári Peugeot hjá Brimborg.

Brimborg tók við Peugeot umboðinu árið 2016 og nú styttist í að Peugeot númer 2000 verði afhentur hjá Brimborg. Íslenskir bílkaupendur hafa tekið einstaklega vel á móti nýju Peugeot bílunum og það sem af er ári er Peugeot í hópi þriggja mest seldu bílana til einstaklinga á Íslandi. Peugeot bifreiðar þykja enda skara framúr hvað varðar hönnun ytra útlits og hönnunar innrarýmis. Rafmagns- og tengiltvinntækni (PHEV) Peugeot leikur þar einnig lykilhlutverk ásamt nýjum fjórhjóladrifnum PHEV bíl, auknum gæðum og framúrskarandi þjónustu Brimborgar með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu raf- og tengiltvinnrafbíla.

Smelltu og kynntu þér Peugeot

Peugeot afmælishátíð hjá Brimborg til 30. júlí

Í tilefni 5 ára afmælis Peugeot hjá Brimborg og metsölu Peugeot á Íslandi þá býður Brimborg í samvinnu við Peugeot í Frakklandi einstakt afmælistilboð á öllum gerðum Peugeot bíla á afmælishátíðinni til 30. júlí.  Að auki, vegna einstaklega góðrar endursölu notaðra Peugeot bíla, býður Brimborg hærra uppítökuverð á notuðum Peugeot upp í nýja Peugeot. Komdu á afmælishátíð!

SKOÐAÐU PEUGEOT Í VEFSÝNINGARSALNUM

 

Peugeot 7 ára ábyrgð 512x1280

 


Vefspjall