Fara í efni

Leiðandi hreyfiafl orkuskipta

Leiðandi hreyfiafl orkuskipta
Frá vinstri: Hjörtur Hafliðason, Gerhard Kreindl, Ríkarður Úlfarsson og Jesus Fernandez de Mesa
Volvo Cars veitti Brimborg viðurkenningu fyrir að vera leiðandi hreyfiafl orkuskipta í samgöngum á Íslandi.
 
Við erum einstaklega stolt af þessari viðurkenningu sem er frábær staðfesting á orkuskiptavegferð Brimborgar og umhverfisstefnu fyrirtækisins, Visthæf skref, sem innleidd var árið 2007 þá hefur Brimborg lagt mikla áherslu á leiðtogahlutverk sitt í orkuskiptum á bílamarkaði með það að markmiði að hraða orkuskiptum.

Volvo rafbílar

Volvo Cars býður upp á úrval hreinna rafbíla og tengiltvinn rafbíla. Bæði Recharge-rafmagnsbílar og -tengiltvinnbílar bjóða upp á akstur án útblásturs. Í tengiltvinn rafbílnum velurðu Pure-rafakstursstillinguna til að nota rafmótorinn eingöngu við daglegan innanbæjarakstur.

Rafbílarnir eru aðeins hluti metnaðarfyllri framtíðarmarkmiða Volvo Cars.  Árið 2040 er stefnt á núll losun gróðurhúsalofttegunda í rekstri Volvo Cars í samræmi við markmið Parísarsamkomulagsins.

Kynntu þér allt um Volvo hér 


Vefspjall