KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA ER NÝR ÞJÓNUSTUAÐILI BRIMBORGAR
			
					06.02.2019			
	
	
				
				Kaupfélag Skagfirðinga er nýr þjónustuaðili Brimborgar á Norðurlandi.
	
	Undirritaður hefur verið samstarfssamningur á milli Brimborgar og bifreiðaverkstæði KS á Sauðárkrók. Kaupfélag Skagfirðinga er nýr þjónustuaðili Brimborgar á Norðurlandi.
Bifreiðaverkstæði KS er með því orðin viðurkenndur þjónustuaðili fyrir öll fólks- og sendibíla merki Brimborgar Ford, Volvo, Mazda, Citroën og Peugeot.
Með samningi þessum eykst þjónusta Brimborgar við viðskiptavini okkar á Norðurlandi en salan á merkjum Brimborgar hefur aukist mikið undanfarin ár á þessu svæði og eiga viðskiptavinir okkar að geta sótt sér alla þjónustu hjá viðurkenndum þjónustuaðila í heimabyggð.
Starfsmenn bifreiðaverkstæðis KS munu taka fagnandi á móti ykkur.

 
  
 