Fara í efni

FRUMSÝNUM SJÖ SÆTA PEUGEOT 5008 MEÐ VÍÐTÆKRI 7 ÁRA ÁBYRGÐ.

FRUMSÝNUM SJÖ SÆTA PEUGEOT 5008 MEÐ VÍÐTÆKRI 7 ÁRA ÁBYRGÐ.
Brimborg frumsýnir sjö sæta Peugeot 5008
Komdu á frumsýningu á Peugeot 5008 laugardaginn 23. janúar að Bíldshöfða 8 Reykjavík milli kl. 12-16.

Brimborg frumsýnir glænýjan, rúmgóðan sjö sæta sparneytinn Peugeot 5008 með góða veghæð og háa sætisstöðu laugardaginn 23. janúar að Bíldshöfða 8 í Reykjavík frá kl. 12-16. Komdu á frumsýningu laugardaginn 23. janúar!

Við frumsýnum glænýjan Peugeot 5008, sparneytinn, rúmgóðan 7 sæta bíll með þrjú stök stök sæti á sleðum í annarri sætaröð og þremur Isofix festingum. Auðvelt er að fella niður öftustu sætaröðina svo að farangursrýmið verði rúmgott. Glænýr Peugeot 5008 er búinn nýjustu kynslóð sparneytinna PureTech bensín- eða BlueHdi dísilvélum. Eldneytiseyðsla í blönduðum akstri er frá aðeins 5,2 l/100 km skv. WLTP mæligildi. Peugeot 5008 er með nýrri 8 þrepa sjálfskiptingu sem sparar allt að 7% af eldsneyti miðað við eldri 6 þrepa sjálfskiptingar.

Glænýr sjö sæta Peugeot 5008 er á frábæru verði, kostar frá 5.690.000 kr. og er fáanlegur í þrem útfærslum; Active Pack, Allure og GT.

  • Nútímaleg hönnun og nýjasta kynslóð af tækni
  • Sparneytinn, rúmgóður sjö sæta bíll
  • Þrjú stök aftursæti í fullri stærð, öll á sleða - þrjár Isofix festingar
  • Einstök veghæð - 23,6 cm
  • Ríkulegur staðalbúnaður

KYNNTU ÞÉR PEUGEOT 5008

SKOÐA ÚRVAL Í VEFSÝNINGARSAL

Brimborg býður bílaskipti úr eldri bíl upp í nýjan Peugeot 5008 sem gildir sem útborgun og með hagstæðri fjármögnun er mánaðargreiðslan aðeins 57.844 kr. á mánuði. Mánaðargreiðslan í þessu dæmi miðast við uppítöku á eldri bíl á 2.000.000 kr. og 7 ára lán og er hlutfallstala kostnaðar í dæminu 6,72%. 

Peugeot 5008

SPARNEYTINN, RÚMGÓÐUR, SJÖ SÆTA BÍLL MEÐ ÞREMUR ISOFIX FESTINGUM
Glænýr Peugeot 5008 er sparneytinn, rúmgóður 7 sæta bíll með þrjú stök stök sæti í annarri sætaröð á sleðum og þremur Isofix festingum. Auðvelt er að fella niður öftustu sætaröðina svo að farangursrýmið verði rúmgott. Glænýr Peugeot 5008 er búinn nýjustu kynslóð sparneytinna PureTech bensín- eða BlueHdi dísilvéla. Eldneytiseyðsla í blönduðum akstri er frá aðeins 5,2 l/100 km skv. WLTP mæligildi. Peugeot 5008 er með nýrri 8 þrepa sjálfskiptingu sem sparar allt að 7% af eldsneyti miðað við eldri 6 þrepa sjálfskiptingar.

NÚTÍMALEG HÖNNUN OG NÝJASTA KYNSLÓÐ AF TÆKNI
Glænýr Peugeot 5008 sker sig úr með vel heppnaðri nútímalegri og notendavænni hönnun að innan og utan. Að utan er það nýr kröftugur, tignarlegur framendi með LED ljósum með háuljósaaðstoð og nýtt grill sem setja sterkan svip á bílinn. Innra rýmið er fullkomið; nútímalegt og notendavænt þar sem sætin sjö með þremur stökum sætum í miðjuröð sem eru öll á sleðum með þremur Isofix festingum leika lykilhlutverk. Peugeot 5008 er með nýjustu kynslóð af i-Cockpit innréttingu sem hefur verið sérhönnuð með notagildi og þægindi fyrir ökumann að leiðarljósi þar sem öll stjórntæki, stafrænir mælar og nýr 10“ skjár eru í sjónlínu ökumanns.

Peugeot 5008

EINSTAKLEGA HÁ VEGHÆÐ: 23,6 CM, HÁ SÆTISSTAÐA OG RÍKULEGUR STAÐALBÚNAÐUR
Glænýr Peugeot 5008 er með einstaklega háa veghæð, 23,6 cm undir lægsta punkt sem er með því hæsta í flokki sjö sæta bíla og háa sætisstöðu svo að það er einstaklega þægilegt að ganga um hann.

Peugeot 5008 er ríkulega búinn þar sem m.a. má finna bakkmyndavél með 180° víddarsýn, nálægðarskynjara að framan og aftan, stafrænt mælaborð með stillanlegu viðmóti, GPS vegaleiðsögn, 10” margmiðlunarskjá, Apple CarPlay snjallsímatengingu, veglínuskynjun, veglínustýringu og ökumannsvaka. Peugeot 5008 er fáanlegur með Grip Control spólvörn sem er fimm mismunandi akstursstillingar til að takast á við mismunandi akstursaðstæður, nýrri næturmyndavél sem skynjar vegfarendur eða dýr allt að 200 m fyrir framan ökutækið og akstursaðstoð sem er innbyggð myndavél á stuðara og í framrúðu hjálpar ökumanni við að aðlaga hraðann eftir umferðaþunga og passar upp á að halda öruggu bili á milli bíla.

Peugeot 5008

7 ÁRA VÍÐTÆK VERKSMIÐJUÁBYRGÐ Á PEUGEOT BÍLUM
Gæði Peugeot eru einstök enda í boði með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustferli framleiðanda. 

Forsala á glænýjum Peugeot 5008 er hafin í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg. Sýningar- og reynsluakstursbílarnir eru komnir í sýningarsal Brimborgar í Reykjavík. Í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg er að finna alla Peugeot 5008 bíla í pöntun. Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr Vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi Peugeot svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Peugeot.

Glænýr sjö sæta Peugeot 5008 er á frábæru verði, kostar frá 5.690.000 kr. og er fáanlegur í þrem útfærslum; Active Pack, Allure og GT.

Peugeot 5008

Peugeot 5008

Brimborg hefur lagt sífellt meiri áherslu á forpöntun nýrra bíla sem hefur gert það að verkum að bílverð lækkar vegna lægri birgðakostnaðar og á sama tíma geta kaupendur hannað bílana nákvæmlega að sínum óskum hvað varðar lit, innréttingu og búnað. Söluráðgjafar Peugeot aðstoða viðskiptavini við við að setja saman draumabílinn.

KYNNTU ÞÉR PEUGEOT 5008

SKOÐA ÚRVAL Í VEFSÝNINGARSAL

 


Vefspjall