Fara í efni

Frumsýning á Ford Focus

Frumsýning á Ford Focus
Nýr Ford Focus er hrikalega flottur!

Við frumsýnum nýjan Ford Focus á laugardaginn milli kl. 12 og 16. Komdu á frumsýningu!

Við frumsýnum nýjan Ford Focus á laugardaginn milli kl. 12 og 16 í sýningarsal Ford við Bíldshöfða 6 í Reykjavík og Tryggvabraut 5 á Akureyri. Komdu á frumsýningu!

Nýr Ford Focus

Alveg nýr Ford Focus er sá allra glæsilegasti Ford Focus bíllinn til þessa og hefur fengið frábæra dóma út um allan heim.

Nýr Ford Focus markar nýja tíma  hvað varðar tækni, þægindi, pláss og akstursupplifun í flokki fólksbíla.  Í 20 ár hefur Ford Focus er hefur verið þekktur fyrir frábæra aksturseiginleika og framúrskarandi gæði en er núna enn betri en áður. Í nýjum Focus er hægt að velja um þrjár akstursstillingar sem breyta aksturseiginleikum mikið, hann fær t.d. áberandi mikla sportbílaeiginleika í sportstillingunni.

Rík áhersla hefur verið lögð á allan öryggisbúnað og má nefna að núna er staðalbúnaður árekstrarvari að framan sem nemur einnig gangandi og hjólandi vegfarendur, veglínuskynjari og umferðaskiltalesari svo fátt eitt sé nefnt af ríkulegum öryggisbúnaði.

Vertu sítengdur við bílinn með Ford Pass í símanum þínum.  FordPass hjálpar þér með að finna staðsetningu bílsins og segir til með stöðu bílsins eins og bensínmagn, olíumagn, birtir viðvaranir og fleira.  Það er meira að segja hægt að  opna og læsa bílnum sem og að starta honum með símanum einum.

Sem stendur er einungis hægt að ná í FordPass Android síma. Náðu í FordPass í gegnum þessa slóðir. Athugaðu að það þarf að stilla símann þannig að hann leyfi uppsetningu forrita sem eru ekki frá Play Store.

Kynntu þér Ford Focus

Komdu á frumsýninguna á alveg nýjum Ford Focus 3. nóvember 12:00 -16:00


Vefspjall