Fara í efni

Brimborg valin í Excellence Club hjá Volvo Cars

Brimborg valin í Excellence Club hjá Volvo Cars
Brimborg valin í Volvo Excellence Club
Brimborg fékk viðurkenninguna fyrir mestu sölu Volvo á Íslandi frá upphafi og eina mestu markaðshlutdeild Volvo á lúxusbílamarkaði í heimi ásamt framúrskarandi ánægju viðskiptavina.

Í kjölfar einstaks árangurs Volvo Cars á Íslandi | Brimborg í sölu Volvo bíla, markaðshlutdeild og ánægju viðskiptavina Volvo fékk Brimborg afhenta frá Volvo Cars viðurkenninguna „Excellence Club Member“. Viðurkenningin var veitt á árlegum fundi alþjóðlegra söluaðila Volvo Cars sem haldinn var í Vín í Austurríki.

Brimborg fékk viðurkenninguna fyrir mestu sölu Volvo á Íslandi frá upphafi og eina mestu markaðshlutdeild Volvo á lúxusbílamarkaði í heimi ásamt framúrskarandi ánægju viðskiptavina. Árið 2018 var besta árið í sögu Volvo á Íslandi þar sem meðal annars var opnaður glænýr sýningarsalur hannaður skv. ströngustu kröfum Volvo Cars.

Afhending verðlauna    
Á myndinni eru Melisa Seleskovic, Frank Versaevel, 
Ríkarður Úlfarsson og Jesus Fernandez de Mesa.

Þetta eru gríðarlega mikilvæg verðlaun og mikil viðurkenning fyrir starfsmenn Brimborgar og Volvo á Íslandi.

Volvo Excellence Club

Afhending verðlauna
Á myndinni eru Danel Hein, Melisa Seleskovic og
Ríkarður Úlfarsson.

Kynntu þér Volvo Cars á Íslandi 

Komdu og reynsluaktu Volvo í dag. Við erum á Bíldshöfða 6 í Reykjavík og við Tryggvabraut 5 á Akureyri.

 


Vefspjall