Fara í efni

Brimborg stærst í sölu einkabíla, jók söluna um 58,8%

Brimborg stærst í sölu einkabíla, jók söluna um 58,8%
Brimborg stærst í sölu einkabíla, jók söluna um 58,8%

Af einstökum bílaumboðum er Brimborg stærst á markaði fyrir einkabíla með 20,3% hlutdeild og seldi 413 bíla frá 1. janúar til 15. apríl 2022. Sala Brimborgar á einkabílamarkaði jókst um 58,8% m.v. sama tíma í fyrra.

Meginástæður fyrir mikilli sölu bíla til einkanota er mikið úrval fólksbíla, jeppa og sendibíla frá sjö bílaframleiðendum, Volvo, Polestar, Ford, Mazda, Citroën, Opel og Peugeot, sem uppfylla allar þarfir Íslendinga, framúrskarandi þjónusta og löng verksmiðjuábyrgð bíla frá Brimborg.

Sala einkabíla á heildarmarkaði jókst hins vegar um 29,4% það sem af er ári m.v. sama tíma fyrir ári og fór úr 1.576 bílum í 2.039 bíla og er því söluvöxtur Brimborgar tvöfalt meiri en á markaði.

Brimborg er einnig stærst bílaumboða á rafbílamarkaði með 24% markaðshlutdeild og það sem af er ári (1.1-15.4) hafa verið nýskráðir 356 rafbílar af bílamerkjum Brimborgar en í heild eru nýskráningar Brimborgarmerkja 761 bílar og vega rafbílar því 47% af sölu Brimborgar. Söluvöxtur Brimborgar í rafbílum það sem af er ári m.v. sama tíma í fyrra er 351%.

Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan og kynntu þér úrval nýrra bíla í Vefsýningarsal Brimborgar:

Vefsýningarsalur nýrra bíla

Rafbílar hjá Brimborg


Vefspjall