Fara í efni

Brimborg flokkar og endurvinnur yfir 80% úrgangs

Brimborg flokkar og endurvinnur yfir 80% úrgangs
Brimborg flokkar og endurvinnur yfir 80% úrgangs

Brimborg birtir í fyrsta skipti heildstætt sjálfbærniuppgjör fyrir öll rekstrarsvið félagsins á öllum starfsstöðvum um allt land með ítarlegum upplýsingum um áhrif starfsemi sinnar á umhverfið, félagslega þætti og stjórnarhætti (UFS). Klappir Grænar Lausnir hafa aðstoðað við gerð sjálfbærniuppgjörsins, sem byggir á þeim upplýsingum sem Klappir hugbúnaðurinn hefur safnað saman yfir árið, ásamt upplýsingum sem safnað er í upplýsingatæknikerfum Brimborgar og upplýsingum frá þriðja aðila.

Margvíslegum gögnum er safnað um áhrif reksturs Brimborgar á umhverfið með það að markmiði að vinna markvisst að því að draga úr þessum áhrifum. Brimborg er með mjög öflugt flokkunarkerfi úrgangs á öllum starfsstöðvum félagins um allt land. Brimborg er með samninga við sorphirðufyrirtæki sem safna úrganginum saman og setja eins mikið og kostur er í endurvinnslu og þá skiptir framúrskarandi flokkun úrgangs höfuðmáli.

Niðurstaðan í fyrsta sjálfbærniuppgjöri Brimborgar fyrir rekstrarárið 2021 er mjög ánægjuleg en þá náðist að flokka 84,1% af úrgangi sem féll til við reksturinn og 81,1% alls úrgangs fór í endurvinnslu. Losun koltvísýringsígilda vegna úrgangs frá rekstri var 31,7 tonn.

Markmið Brimborgar á þessu ári er að vinna enn frekar að markmiðum um annars vegar minnkun úrgangs og hins vegar enn frekari flokkun og endurvinnslu með það að markmiði að ná bæði flokkun og endurvinnslu yfir 90% og draga úr koltvísýringslosun.

Brimborg er fyrst bíla- og atvinnutækjaumboða á Íslandi og fyrsta ökutækjaleigan á Íslandi sem gefur út heildstætt sjálfbærniuppgjör fyrir öll rekstrarsvið félagsins á öllum starfsstöðvum um allt land og er þetta stóra vistskref í samræmi við umhverfisstefnuna Visthæf skref og við kjörorð félagsins, Öruggur staður til að vera á.

Sjálfbærniuppgjörið fer eftir alþjóðlegum stöðlum um UFS mælikvarða (e. ESG standards) og hefur að geyma allar helstu upplýsingar um umhverfismál, félagslega þætti og stjórnarhætti Brimborgar í samræmi við UFS-leiðbeiningar sem Nasdaq á Íslandi og Norðurlöndunum gáfu út árið 2019.

Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan fyrir ítarlegri upplýsingar um sjálfbærniuppgjör Brimborgar 2021

Sjálfbærniuppgjör Brimborgar 2021


Vefspjall