Fara í efni

Brimborg á Íslensku sjávarútvegssýningunni

Brimborg á Íslensku sjávarútvegssýningunni
Brimborg verður á staðnum.
Brimborg kynnir nýjungar á glæsilegum bás 50 á Íslensku sjávarútvegssýningunni sem fer fram í Smáranum, Kópavogi 13.-15. september næstkomandi.

Brimborg kynnir nýjungar á glæsilegum bás 50 á Íslensku sjávarútvegssýningunni sem fer fram í Smáranum, Kópavogi 13.-15. september næstkomandi. Við erum spennt að hitta sem flesta á sýningunni og hvetjum þig til að kíkja til okkar á básinn í spjall og gæðakaffi frá Kaffitár. Framundan eru miklar breytingar hjá Brimborg með það að markmiði að auka þjónustu við viðskiptavini okkar.

Glæsilegt nýtt húsnæði atvinnutækjasviðs

Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar flytur í nýtt, glæsilegt húsnæði að Hádegismóum 8 um áramót undir nýju nafni VELTIR. Á bás 50 munum við kynna nýtt húsnæði, aukna þjónustu við Volvo Penta eigendur og frábær tilboð á Volvo Penta vélbúnaði og rekstrarvörum.  

Fyrirtækjalausnir Brimborgar

Fyrirtækjalausnir Brimborgar er ný deild hjá Brimborg sem hefur það markmið að auka þjónustu við fyrirtæki með því að útvega þeim heildarlausnir í bílamálum. Á bás 50 munum við vera með fyrirtækjatilboð á bílum og forsýningu á nýja Volvo XC60 jeppanum.

Frábær tilboð

Kíktu í spjall og kaffi til okkar í Brimborg á bás 50 á Íslensku sjávarútvegssýningunni. Frábær tilboð á Volvo Penta vélbúnaði og rekstrarvörum og frábær fyrirtækjatilboð á bílum.


Vefspjall