Fara í efni

Nýi Volvo XC60 lúxusjeppinn

Nýi Volvo XC60 lúxusjeppinn
Nýr Volvo XC60
Volvo Cars hefur kynnt lúxusjeppann XC60 en hann var kynntur til leiks á bílasýningunni í Genf og má með sanni segja að hann sé bíll sem margir hafa beðið eftir. Nýi bíllinn kemur í stað hins geysivinsæla XC60, sem náði þeim áfanga að verða mest seldi miðlungsstóri lúxusjeppinn í Evróp

Nýi XC60-lúxusjeppinn


Volvo Cars hefur kynnt lúxusjeppann en hann var kynntur til leiks á bílasýningunni í Genf en hann er bíll sem margir hafa beðið eftir.

Nýi bíllinn kemur í stað hins geysivinsæla XC60, sem náði þeim áfanga að verða mest seldi miðlungsstóri lúxusjeppinn í Evrópu frá því að hann kom á markað fyrir níu árum og seldist í tæplega milljón eintökum. Í dag stendur XC60 undir um 30 prósentum af sölu Volvo á heimsvísu.

„Hjá okkur er rík hefð fyrir því að hanna stílhreina og kraftmikla jeppa sem búnir eru nýjustu tækni. Nýr XC60 verður þar engin undantekning. Þetta er fullkominn bíll fyrir þá sem lifa lífinu lifandi og birtingarmynd næsta stigs í umbreytingaráætlun okkar,“ segir Håkan Samuelsson, forstjóri Volvo Car Group.

Nýjungar í þægindum og öryggistækni
Nýr XC60 er einn öruggasti bíll sem framleiddur hefur verið og er auk þess ríkulega búinn nýrri tækni. Stýrisaðstoð hefur verið bætt við City Safety-öryggiskerfið. Nýtt öryggiskerfi notar stýrisaðstoðina til að koma í veg fyrir árekstur við bíla sem koma úr gagnstæðri átt auk þess sem blindsvæðisskynjarinn notar núna stýrisaðstoðina til að draga úr hættu á árekstrum þegar skipt er um akrein.

„Við lögðum áherslu á að hanna bíl sem veitir upplifun fyrir öll skynfærin – allt frá góðri yfirsýn yfir veginn framundan úr fallegu og friðsælu farþegarými til öruggs og ánægjulegs aksturs,“ segir Henrik Green, aðstoðarforstjóri vöru- og gæðadeildar Volvo Car Group. „Við lögðum sérstaka áherslu á þægindi og þjónustu sem léttir viðskiptavinum okkar lífið í amstri dagsins.“

Pilot Assist-kerfið, háþróað hálfsjálfvirkt aðstoðarkerfi fyrir ökumanninn sem tekur við stjórn stýris, inngjafar og hemla á vel merktum vegum á allt að 130 km/klst., er í boði sem aukabúnaður í nýjum XC60.

Afköst
Nýi XC60 er fáanlegur með verðlaunuðu T8-tengiltvinnvélinni sem skilar 407 hestöflum og nær hundraðinu á aðeins 5,3 sekúndum.
„Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval véla. Nýr XC60 kemur á markað með 190 hestafla D4-dísilvélinni og 235 hestafla D5-vél með PowerPulse-tækni. Við bjóðum einnig upp á 254 hestafla T5-bensínvélina og T6-vélina sem er búin tveimur forþjöppum og skilar 320 hestöflum og 400 Nm togi,“ bætir Henrik Green við.

Afköst nýs XC60 felast hins vegar ekki bara í því sem er undir vélarhlífinni. Nýtt fjögurra svæða CleanZone hita- og loftstýringarkerfi síar burt skaðlega mengunarvalda og agnir úr lofti sem er dælt inn í farþegarýmið til að tryggja loftgæði.

Útlit Sensus, upplýsinga- og afþreyingarkerfis Volvo Cars og tengdrar þjónustu, og forritsins Volvo On Call hefur verið uppfært til að tryggja aukið notagildi. Eins og í bílum 90-línunnar er tenging við snjallsíma í gegnum CarPlay og Android Auto einnig í boði.

Sterkbyggð útgeislun
„XC60 er ekki jeppi sem er hugsaður til þess að gnæfa yfir öðrum, heldur er hann fyrst og fremst hugsaður fyrir akstur. Ytra byrðið ber með sér kraftmikla útgeislun með látlausum, tímalausum gæðum. Innanrýmið er haganlega hannað, klætt fallegum efnum og búið nýjustu tækni – í fullkomnum samhljómi. XC60 býður viðskiptavinum okkar upp á hina einu sönnu norrænu upplifun,“ segir Thomas Ingenlath, aðstoðarforstjóri hönnunardeildar Volvo Car Group.

Volvo XC60 verður frumsýndur á Íslandi í október.

Árið 2016 hjá Volvo Car Group
Fjárhagsárið 2016 skilaði Volvo Car Group hagnaði upp á 11.014 milljónir sænskra króna (samanborið við 6.620 milljónir árið 2015). Tekjur á tímabilinu voru 180.672 milljónir sænskra króna (samanborið við 164.043 milljónir sænskra króna árið áður). Árið 2016 reyndist metsöluár með 534.332 bílum seldum á heimsvísu, sem er aukning um 6,2 prósent frá fyrra ári. Metsala og -hagnaður gerðu Volvo Car Group kleift að halda áfram fjárfestingu í alþjóðlegri umbreytingaráætlun sinni.

Um Volvo Car Group
Volvo hefur verið í rekstri frá árinu 1927. Í dag er Volvo Cars einn þekktasti og virtasti bílaframleiðandi í heimi með 534.332 selda bíla á árinu 2016 í meira en 100 löndum. Volvo Cars hefur verið í eigu kínverska fyrirtækisins Zhejiang Geely Holding (Geely Holding) frá árinu 2010. Fram til ársins 1999 var fyrirtækið hluti af hinu sænska Volvo Group, en það ár keypti bandaríska fyrirtækið Ford Motor Company fyrirtækið. Árið 2010 keypti Geely Holding svo Volvo Cars.

Í desember 2016 störfuðu meira en 31.000 manns hjá Volvo Cars víðs vegar um heiminn. Aðalskrifstofa Volvo Cars, vöruþróunardeild, markaðs- og stjórnunardeildir eru að mestu staðsettar í Gautaborg í Svíþjóð. Kínverski hluti aðalskrifstofu Volvo Cars er í Sjanghæ. Meginhluti bílaframleiðslu fyrirtækisins fer fram í verksmiðjum þess í Gautaborg (Svíþjóð), Ghent (Belgíu), Chengdu og Daqing (Kína) á meðan vélarnar eru framleiddar í Skövde (Svíþjóð) og Zhangjiakou (Kína) og íhlutir í yfirbyggingar í Olofström (Svíþjóð).

 

 


Vefspjall