Fara í efni

Brimborg sendibílaleiga skiptir alfarið í rafsendibíla

Brimborg sendibílaleiga skiptir alfarið í rafsendibíla
Anton Smári Rúnarsson, framkvæmdastjóri Thrifty bílaleigu Brimborgar, við einn af nýju rafsendibílunum sem er í hleðslu í öflugri 180 kW hraðhleðslustöð Brimborgar Bílorku.

Til að mæta vaxandi eftirspurn eftir umhverfisvænni samgöngum hefur Thrifty, sendibílaleiga Brimborgar, tekið stórt skref í átt að sjálfbærari framtíð í samræmi við umhverfisstefnu Brimborgar, Visthæf skref. Brimborg hefur skipt út öllum dísilsendibílum sendibílaleigunnar fyrir rafsendibíla. Þetta táknar ekki aðeins stefnubreytingu í rekstri sendibílaleigunnar heldur einnig framfarir í átt að sjálfbærari samgöngum á Íslandi. Útskiptin hófust í nóvember 2023, gengu ótrúlega vel en þurftu sérhæfða innviðauppbyggingu sem Brimborg Bílorka sá um og er þessum orkuskiptum nú lokið.

Breytingunni hefur verið einstaklega vel tekið af viðskiptavinum sendibílaleigunnar, enda er mjög þægilegt að keyra lágværa, mengunarlausa og lipra rafsendibílana sem Thrifty býður upp á með fríu rafmagni. Með þessari nálgun er lagður grunnur að grænni og hreinni framtíð, þar sem sjálfbærni og umhverfisvernd eru í forgrunni allra ákvarðana.

Áframhaldandi sjálfbærniskuldbinding

Framkvæmdin endurspeglar djúpstæða skuldbindingu Brimborgar við umhverfisstefnu sína, Visthæf skref, sem miðar meðal annars að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og stuðla að hreinni og grænni framtíð fyrir alla. Með leigu á stórum eða smáum rafsendibílum gefst viðskiptavinum kostur á að njóta þæginda og hagkvæmni rafsendibíla án dísilbrennslu, sótmengunar og losunar gróðurhúsalofttegunda.

Sveigjanleg leiga og frítt rafmagn

Viðskiptavinir geta sem áður leigt rafsendibíla á einfaldan hátt á vefnum í 2-24 tíma. Hvort sem er fyrir stuttar sendiferðir innan borgarinnar eða lengri ferðir. Með staðsetningu hraðhleðslustöðva víða um landið er aldrei langt í næstu hleðslu og á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ hafa viðskiptavinir aðgang að öflugu hraðhleðsluneti Brimborgar Bílorku án endurgjalds. Einnig má nefna að ekki er þörf á að hlaða bíl áður en honum er skilað.

Öflugir hraðhleðsluinnviðir

Til að tryggja endurhleðslu rafsendibílanna á skilvirkan hátt á starfsstöðvum leigunnar, bæði í Reykjanesbæ og Reykjavík, voru settar upp öflugar hraðhleðslustöðvar sem eru um leið opnar almenningi og því tvær flugur slegnar í einu höggi.

Í Reykjanesbæ á Flugvöllum 8 var sett upp öflugasta hraðhleðslustöð landsins sem er 600 kW með 8 tengjum og er opin öllum og býður eitt lægsta hraðhleðsluverðið á landinu eða 49 kr per kWh. Á Breiðhöfða 1 í Reykjavík var sett upp 180 kW hraðhleðsla með tveimur tengjum sem líka er opin öllum með sama lága hraðhleðsluverðið. En með henni var sett upp minni 50 kW hraðhleðsla með tveimur tengjum auk einnar AC stöðvar (hæghleðsla).

Sjálfbærnivegferð Brimborgar

Brimborg er þekkt fyrir að vera í fararbroddi þegar kemur að umhverfisvernd og sjálfbærni í bílgreininni. Með áherslu á grænar lausnir og nýsköpun í öllum sínum rekstri, stefnir Brimborg að því að vera fyrirmynd í umhverfismálum og stuðla að sjálfbærri þróun samfélagsins.


Vefspjall