Fara í efni

Thrifty, bílaleiga Brimborgar, valin Besta Bílaleigan af erlendum ferðamönnum í Keflavík

Thrifty, bílaleiga Brimborgar, valin Besta Bílaleigan af erlendum ferðamönnum í Keflavík
Thrifty er Besta bílaleigan!
Thrifty, bílaleiga Brimborgar, var valin Besta bílaleigan árið 2018 á Keflavíkurflugvelli af viðskiptavinum rentalcars.com, stærstu bílaleigubókunarsíðu í heimi, sem tekur við um 10 milljónum bílaleigubókana á ári!

Bílaleiga Brimborgar, Thrifty Car Rental, fékk þær ánægjulegu fréttir í dag að hafa verið valin Besta Bílaleigan (Customer Favourite) 2018 á Keflavíkurflugvelli af viðskiptavinum rentalcars.com, stærstu bílaleigubókunarsíðu í heimi, sem tekur við um 10 milljónum bílaleigubókana á hverju ári.

Brimborg er leyfishafi fyrir bílaleigurnar Thrifty Car Rental og Dollar Rent a Car og er aðili að Samtökum Ferðþjónustunnar (SAF) og er þetta gríðarlega mikilvæg viðurkenning á framúrskarandi starfi bílaleiguteymis Brimborgar, hvort sem er í Keflavík, Reykjavík eða Akureyri og ekki síður viðurkenning til allra starfsmanna Brimborgar sem á einn eða annan hátt koma að þjónustu bílaleigunnar við viðskiptavini hennar. Allir hlekkir í keðjunni eru mikilvægir til að ná þessum framúrskarandi árangri og skemmtilegt að fá viðurkenninguna á 10 ára afmæli bílaleigunnar sem tók við sínum fyrstu bókunum í febrúar 2009. Brimborg hóf samstarf við rentalcars.com ári síðar og er Dollar Thrifty á Íslandi einn stærsti samstarfsaðili rentalcars.com á Íslandi.

Sérstaklega mikilvæg viðurkenning

Viðurkenningin er sérstaklega mikilvæg í ljósi þess fjölda sem gaf Thrifty einkunn en þúsundir viðskiptavina rentalcars.com gáfu Thrifty einkunn. Customer Favourite viðurkenningarborði ásamt framúrskarandi einkunn birtist við hvern einasta bíla sem Thrifty býður til leigu á hinum geysivinsæla vef rentalcars.com. Viðurkenningin er sérstaklega mikilvæg núna því rentalcars.com herti kröfurnar á síðasta ári til að fá þessa viðurkenningu og vegur stöðugleiki þjónustugæða mun meira en áður. Þættir sem hafa áhrif á einkunn eru viðmót starfsmanna, ástand bíla, hreinleiki bíla, hraði við afgreiðslu og hraði við skil og verð og skoraði Thrifty einstaklega vel á öllum þessum þáttum.

Kynntu þér bílaleigur Brimborgar:

Vefsíða Thrifty á Íslandi

Vefsíða Dollar á Íslandi

SENDIBÍLALEIGA BRIMBORGAR

LANGTÍMALEIGA BRIMBORGAR


Vefspjall