Fara í efni

Jafnlaunastefna

Til þess að framfylgja lögum um launajafnrétti mun Brimborg ehf.:

Við ákvörðun launa gæta þess að kynjum sé ekki mismunað og skulu laun ákveðin á sama hátt fyrir allt starfsfólk óháð kyni, uppruna eða fötlunar, en að teknu tilliti til mismunandi ábyrgðar, vinnuframlags, hæfni, frammistöðu og menntunar. Allir skulu njóta jafnra kjara fyrir jafn verðmæt og sambærileg störf. Um skilgreiningu á launum og kjörum vísast til 8. og 9. mgr. 2. gr. laga og 6. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020.

Um 6. gr.  Almennt ákvæði um launajafnrétti
Konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá skulu greidd jöfn laun og njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir fólk óháð kyni. Skulu þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun ekki fela í sér kynjamismunun. Starfsfólki skal ávallt heimilt að skýra frá launakjörum sínum ef það kýs að gera svo.

  • Innleiða vottað jafnlaunakerfi sem byggist á jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012, það skjalfest og því viðhaldið.
  • Framkvæma launagreiningu minnst einu sinni á ári þar sem borin eru saman jafnverðmæt störf og athugað hvort mælist munur á launum eftir kyni og kynna helstu niðurstöður fyrir starfsfólki.
  • Bregðast við óútskýrðum launamun með stöðugum umbótum og eftirliti.
  • Gera innri úttekt og rýna kerfið og árangur þess með stjórnendum a.m.k. árlega.
  • Fylgja viðeigandi lögum og reglum sem í gildi eru á hverjum tíma.
  • Kynna stefnuna fyrir starfsfólki Brimborgar og hafa hana aðgengilega starfsfólki, hagsmunaaðilum og almenningi á heimasíðu Brimborgar.

Gæðastjóri launa og jafnlaunavottunar ber ábyrgð á jafnlaunastefnu Brimborgar og jafnlaunakerfi sem byggir á þeirri jafnlaunastefnu, mannauðsstefnu og að þeim lagalegu kröfum sem tengjast því að jafnlaunakerfi Brimborgar sé framfylgt. Ásamt því að bera ábyrgð á innleiðingu og viðhaldi jafnlaunakerfis í samræmi við staðalinn ÍST 85:2012. Framkvæmdastjórar sviða skulu einnig skuldbinda sig til að viðhalda stöðugum umbótum, eftirliti og bregðast við óútskýrðum launamun og þeim frávikum sem fram kunna að koma við rýni á jafnlaunakerfinu. Jafnlaunastefnan er órjúfanlegur hluti af launastefnu Brimborgar.

Jafnlaunastefnan var innleidd í janúar 2021, uppfærð í febrúar 2022 og jafnlaunavottuð 12.04.2021 sem skal endurskoða í apríl 2024, eða á þriggja ára fresti.

Samþykkt af stjórn Brimborgar 15. febrúar 2022.

Vefspjall