BRIMBORG VALIN Í EXCELLENCE CLUB HJÁ VOLVO CARS Í ÞRIÐJA SINN
Brimborg var valin í Excellence Club hjá Volvo Cars í þriðja sinn fyrst allra landa. Ozge Ugurluel svæðisstjóri hjá EMEA Importers og Moris Bayar yfirmaður sölumála hjá EMEA Importers hjá Volvo Cars komu til landsins og afhentu verðlaunin í sýningarsal Volvo á Íslandi.
Brimborg fékk viðurkenninguna fyrir mestu sölu Volvo á Íslandi frá upphafi, eina mestu markaðshlutdeild Volvo á markaði fyrir hágæða bíla, framúrskarandi árangur í vara- og aukahlutasölu og þjónustu á verkstæði ásamt framúrskarandi heildaránægju viðskiptavina.
Þetta eru gríðarlega mikilvæg verðlaun og mikil viðurkenning fyrir starfsmenn Brimborgar og Volvo á Íslandi.
Volvo Cars Excellence Club keppnin
Volvo Cars stendur fyrir Excellence Club-keppninni til að verðlauna bestu söluaðilana. Keppnin hefur verið haldin í 4 ár og er byggð á mismunandi lykilmælikvörðum. Lykilmælikvarðarnir eru ekki einungis tengdir sölu heldur einnig gæðum þjónustunnar við viðskiptavini, með því að huga sérstaklega að mælingum sem hafa áhrif á viðskiptin, til dæmis ánægju viðskiptavina.
Þeir lykilmælikvarðar sem unnið er með af Volvo, eru:
- Sala/afhending bíla mv. sett markmið gagnvart Volvo fyrir 2021
- Vöxtur milli ára í sölu/afhendingum 2020 vs. 2021
- Niðurstöður hulduheimsókna Volvo til okkar
- Google Ratings, þurfum að vera yfir 4,5
- Þjónustukannanir, Net Promoter Score, framkvæmdar
- Fjöldi bíla (Active Cars) sem koma í þjónustu mv. sett markmið
- Sala aukahluta (Accessories Penetration) mv. sett markmið
- Sala notaðra bíla - Used Cars Sales Report til Volvo
Kynntu þér Volvo Cars á Íslandi
Komdu og reynsluaktu Volvo. Við erum á Bíldshöfða 6 í Reykjavík og við Tryggvabraut 5 á Akureyri.